Beint í efni

38. (1755). fundur

04.10.2016
Bæjarráð Garðabæjar

38. (1755). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

04.10.2016

Kl. 08:00 - 09:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - varamaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1610023

01

Borgarlína - greinargerð um kynnisferð á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Á fund bæjarráðs mættu Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri og Hrafnkell Á Proppé, svæðisskipulagsstjóri og gerðu þeir grein fyrir kynnisferð sem farin var á vegum SSH til Kaupmannahafnar, Strasbourgar og Vancuver. Tilgangur ferðarinnar var að skoða skipulag og fyrirkomulag almenningssamgangna í þeim tilgangi að undirbúa lagningu Borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við ákvæði í ný samþykktu svæðisskipulagi.

Kynnt voru drög að aðgerðaráætlun sem gerir ráð fyrir lokatillögu um leiðir í febrúar 2017 og í framhaldinu stofnun félags um uppbyggingu Borgarlínu.

Málsnúmer 1609174

02

Blikanes 14- Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús að Blikanesi 14.

Málsnúmer 1607249

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Holtsbúð 10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús við Holtsbúð 10, samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Málsnúmer 1608251

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi, viðbyggingu neðanjarðar við Súlunes 10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús að Súlunesi 10 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.

Málsnúmer 1608205

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna umsóknar um byggingarleyfi við Þernunes 7, dýpkun á bílskúr.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við núverandi hús að Þernunesi 7 samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir

Málsnúmer 1609367

06

Bréf Sjálfsbjargar um styrk, dags. 22.09.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609411

07

Bréf Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra um styrk, dags 27.09.16.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs og felur sviðsstjórum afgreiðslu þess með hliðsjón af atburðum eða tilvikum hverju sinni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609371

08

Bréf íbúa í Prýðahverfi um frágang við götur og opin svæði, ódags.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og vísar bréfinu til frekari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609378

09

Bréf Hafnarfjarðarbæjar um umferðartengingar við Álftanesveg, dags. 23.09.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar sem athugasemd við breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns sem auglýst hefur verið til kynningar samkvæmt ákvæðum skipulagslaga og felur jafnframt bæjarstjóra að kynna málið fyrir bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609393

10

Bréf G.S - Ráðgjafar um merkingar bílastæða á Garðatorgi, dags. 26.09.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609138

11

Drög að samningi Garðabæjar og Arkitektafélags Íslands um framkvæmdasamkeppni vegna skipulags miðsvæðis Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfssamning við Arkitektafélag Íslands um opna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag á miðsvæði Álftaness.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1609119

12

Forvarnavika - kynning.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi og dagskrá forvarnaviku sem verður dagana 10. - 14. október.

Málsnúmer 1606230

13

Drög að samningi Garðabæjar og Hjallastefnunnar um rekstur dagvistar að Vífilsstöðum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Hjallastefnuna um rekstur dagheimilis að Vífilsstöðum.

Sturla Þorsteinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl