Borgarlína - greinargerð um kynnisferð á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Málsnúmer 1610023
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
38. (1755). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri og Hrafnkell Á Proppé, svæðisskipulagsstjóri og gerðu þeir grein fyrir kynnisferð sem farin var á vegum SSH til Kaupmannahafnar, Strasbourgar og Vancuver. Tilgangur ferðarinnar var að skoða skipulag og fyrirkomulag almenningssamgangna í þeim tilgangi að undirbúa lagningu Borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við ákvæði í ný samþykktu svæðisskipulagi.
Kynnt voru drög að aðgerðaráætlun sem gerir ráð fyrir lokatillögu um leiðir í febrúar 2017 og í framhaldinu stofnun félags um uppbyggingu Borgarlínu.