Beint í efni

Drög að samningi um styrk til að gera bílastæði við upphaf gönguleiðar á Búrfell.

Málsnúmer 1610095

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (1789). fundur

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

32. fundur

Ákvörðun um styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2017 var tilkynnt Garðabæ með bréfi 16. mars sl. styrkur kr. 9.950.000.- til bílastæða við upphaf gönguleiðar á Búrfell. Nýtt bílaplan mun bæta aðstöðu fólks til útivistar á svæðinu og jafnframt umferðar öryggi.

Nefndin óskar eftir að sótt verði um framkvæmdaleyfi til verksins.

Garðabæ var tilkynnt með bréfi dags. 16.03.17. ákvörðun um styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2017, styrkur að upphæð 9.950.000 kr. ætlað til bílastæðagerðar við upphaf gönguleiðar á Búrfell.
Nýtt bílaplan mun bæta aðstöðu fólks til útivistar á svæðinu og umferðaröryggi.
Nefndin óskar eftir að sótt verði um framkvæmdaleyfi til verksins.

Einnig óskar nefndin eftir kostnaðaráætlun frá Eflu á ástandsgreiningu vegna ágangs um Búrfellsgjá.


Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

32. fundur

Framkvæmdasjóður ferðamanna vorið 2017, hafnar umsókn um styrk er umhverfisstjóri sótti um vegna lagfæringa á strandstíg á Álftanesi.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (1777). fundur

Í bréfinu er tilkynnt um styrkveitingu að fjárhæð kr. 9.950.000 úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2017 til framkvæmda við gerð bílastæða í Heiðmörk við upphaf gönguleiðar á Búrfell.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

27. fundur

Landsáætlun um uppbyggingu innviða til varndar náttúru- og menningarsögulegum minjum skv. bráðabirðaákvæði við lög nr. 20/2016

Drög að áætlun vegan verkefna ársins 2017.

Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru- og menningarsögulegum minjum skv. bráðabirðaákvæði við lög nr. 20/2016.

Drög að áætlun vegna verkefna ársins 2017.

Umhverfisnefnd telur að senda eigi athugasemd við að enginn svæði í Garðabær eru tilgreind í skýrslunni.

Fylgiskjöl