Beint í efni

32. fundur

05.04.2017
Umhverfisnefnd Garðabæjar

32. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

05.04.2017

Kl. 08:00 - 10:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
  • Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1611066

02

Umhverfisstefna - endurskoðun

Umhverfisstefna Garðabæjar sem nefndin hefur unnið að undanfarið ásamt viðauka um líffræðilegan fjölbreytileika í Garðabæ hefur verið tekin fyrir í bæjarráði og samþykkt

Umhverfisnefnd leggur til að þessi gögn fari í prófarkalestur og áfram til hönnunar með myndum til birtingar á www.gardabaer.is og til útgáfa bæklings.

Málsnúmer 1610095

03

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða - styrkveiting

Ákvörðun um styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2017 var tilkynnt Garðabæ með bréfi 16. mars sl. styrkur kr. 9.950.000.- til bílastæða við upphaf gönguleiðar á Búrfell. Nýtt bílaplan mun bæta aðstöðu fólks til útivistar á svæðinu og jafnframt umferðar öryggi.

Nefndin óskar eftir að sótt verði um framkvæmdaleyfi til verksins.

Garðabæ var tilkynnt með bréfi dags. 16.03.17. ákvörðun um styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2017, styrkur að upphæð 9.950.000 kr. ætlað til bílastæðagerðar við upphaf gönguleiðar á Búrfell.

Nýtt bílaplan mun bæta aðstöðu fólks til útivistar á svæðinu og umferðaröryggi.

Nefndin óskar eftir að sótt verði um framkvæmdaleyfi til verksins.

Einnig óskar nefndin eftir kostnaðaráætlun frá Eflu á ástandsgreiningu vegna ágangs um Búrfellsgjá.


Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610095

04

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða - synjun á styrk 2017

Framkvæmdasjóður ferðamanna vorið 2017, hafnar umsókn um styrk er umhverfisstjóri sótti um vegna lagfæringa á strandstíg á Álftanesi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606484

05

Verndarsvæði í byggð - Garðahverfi

Unnið hefur verið að því í samstarfi við Alta ráðgjöf að Garðahverfi verði tilnefnt sem "Verndarsvæði í byggð". Tillaga þess efnis verður tekin fyrir í bæjarstjórn 6. apríl nk.

Umhverfisstjóri hefur verið að kynna málið fyrir íbúum með heimsóknum í Garðahverfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1703336

06

Auglýsing um styrki til að undirbúa tillögur að verndarsvæði í byggð.

Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki úr húsfriðunarsjóði til að undirbúa tillögu að verndarsvæði í byggð í samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð.

Umhverfisnefnd telur ekki ástæðu til að sækja í húsafriðunarsjóð aftur meðan unnið er að tillögunni í Garðahverfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702391

07

Votlendisendurheimt við Urriðavatn

Undirbúningsfundur varðandi endurheimt votlendis við Urriðavatn var haldinn hjá Toyota í Kauptúni þann 28. mars 2017 þar sem Úlfar Steindórsson forstjóri bauð uppá kynningu á skýrslu sem Toyota fékk VERKÍS til að gera vegna áhuga fyrirtækisins að standa að endurheimt votlendis í nærumhverfi þess við Urriðavatn.

Ákveðið var að hefja undirbúning að samstarfi um endurheimt votlendis sem að stæðu Toyota á Íslandi, Urriðaholt ehf., Byggingarfélag Gunnars og Gylfa ásamt Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1612021

08

Hleðslustöð fyrir rafbíla

Unnið hefur verið að undirbúningi að uppsetningu hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla á Garðatorgi. Bærinn fékk styrk frá Orkusjóði vegna uppbyggingar innviða fyrir rafbíla.

Minnisblað kynnt og rætt varðandi tillögu að staðsetningu og uppsetningu á hraðhleðslustöð á Garðatorgi.

Nefndin leggur til við bæjarráð að gengið verði til samninga við söluaðila.

Málsnúmer 1703354

09

Hjóla og gönguteljari

Erindi TGJ Teiknistofu, dags. 29.03.17. um teljarakerfi við göngu- og hjólastíga.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1703377

10

Samráðshópur um umhverfismál

Fundur samráðshóps um umhverfismál á SV horninu haldinn í Garðabæ þann 20. mars sl.

Fundargerð fundarins lögð fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1703388

11

Skógrækt í skipulagsáætlunum sveitarfélaga

Kynningarbæklingur um Skógrækt í skipulagsáætlunum sveitarfélaga frá Skógræktinni og Skipulagsstofnun lagður fram.

Fylgiskjöl