Votlendisendurheimt við Urriðavatn
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (813). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita leyfi til framkvæmda við endurheimt votlendis í mýrlendi sunnan Urriðakotsvatn.
Bæjarráð Garðabæjar
02
22. (1788). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita leyfi til framkvæmda við endurheimt votlendis í mýrlendi sunnan Urriðakotsvatn.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
35. fundur
Afgreiðsla styrkumsónar til Landgræðslunnar vegna endurheimtar votlendis móttekin. Beðið er eftir umsögn Umhverfisstofnunar
Landgræðslan tekur þátt í verkefninu með því að bjóða fram ráðgjöf, vöktun og vinnu við árangursmat.
Þegar framkvæmdaleyfi liggur fyrir hefst undirbúningur að framkvæmdinni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
7. fundur
Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings fyrir framkvæmdaleyfi fyrir aðgerðum til endurheimtunar votlendis í mýrlendi sunnan Urriðakotsvatns í samræmi við verklýsingu. Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123.2010.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
32. fundur
Undirbúningsfundur varðandi endurheimt votlendis við Urriðavatn var haldinn hjá Toyota í Kauptúni þann 28. mars 2017 þar sem Úlfar Steindórsson forstjóri bauð uppá kynningu á skýrslu sem Toyota fékk VERKÍS til að gera vegna áhuga fyrirtækisins að standa að endurheimt votlendis í nærumhverfi þess við Urriðavatn.
Ákveðið var að hefja undirbúning að samstarfi um endurheimt votlendis sem að stæðu Toyota á Íslandi, Urriðaholt ehf., Byggingarfélag Gunnars og Gylfa ásamt Garðabæ.