35. fundur
35. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
12.06.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1611066
01
Umhverfisstefna - endurskoðun
Útlit umhverfisstefnu Garðabæjar lögð fram.
Umhverfisnefnd samþykkir útlit og innihald umhverfisstefnunnar.
Umhverfisstefnan verður sett á vef Garðabæjar í vikunni og stefnan verður svo gefin út á pappírsformi í haust.
Málsnúmer 1702391
02
Votlendisendurheimt við Urriðavatn
Afgreiðsla styrkumsónar til Landgræðslunnar vegna endurheimtar votlendis móttekin. Beðið er eftir umsögn Umhverfisstofnunar
Landgræðslan tekur þátt í verkefninu með því að bjóða fram ráðgjöf, vöktun og vinnu við árangursmat.
Þegar framkvæmdaleyfi liggur fyrir hefst undirbúningur að framkvæmdinni.
Málsnúmer 1701250
03
Plast málefni
Á 375. stjórnarfundi Sorpu þann 12. maí sl. var framkvæmdastjóra falið að undirbúa uppsetningu tækjabúnarðar fyrir s.k. Seltjarnaneslausn sem verði tilbúin 1. nóvember 2017
Umhverfisnefnd samþykkir að unnið verður að undirbúningi fyrir svokallaða Seltjarnarneslausn og mun hún hefjast 1. nóvember 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1704212
04
Hjólamál á höfuðborgarsvæðinu - þróun samgöngukerfa
Vinnuhópur vinnur að Þróun stofnleiða hjólaleiða í samræmi við samkomulag SSH og Vegagerðarinnar. Hluti þess er tilraunaverkefni til að draga úr hraða hjólandi umferðar.
Kynntar voru hugmyndir að hraðatakmarkandi aðgerðum með málun og merkingum á stígnum í gegnum Sjálandshverfið
Umhverfisnefnd samþykkir tilraunaverkefnið.
Málsnúmer 1701310
05
Fræðslu- og sögugöngur 2017
Fræðslu- og söguganga um Vífilistaði og nærumhverfi verður 21. júní, mæting kl 17:15
Leiðsögn: Steinar J. Lúðvíksson höfundur Sögu Garðabæjar
Fræðslu- og söguganga um Vífilistaði og nærumhverfi verður 21. júní, mæting kl 17:15
Leiðsögn: Steinar J. Lúðvíksson höfundur Sögu Garðabæjar
Málsnúmer 1706070
06
Árskýrsla Náttúrfræðistofnunar
Ársskýrsla Náttúrfræðistofnunar lögð fram
Árskýrsla Náttúrufræðistofnunar lögð fram fyrir nefndina.
Málsnúmer 1612021
07
Hleðslustöð fyrir rafbíla
Staðsetning hraðhleðslustöðvar á Garðatorgi
Staðsetning hraðhleðslustöðvar á Garðatorgi.
Umhverfisnend leggur til að stöðin verði staðsett í bílakjallaranum.
Málsnúmer 1706147
08
Tillaga vegna losunar á blaða- og pappaúrgangi við fjölbýli
Tillaga Bjartrar Framtíðar vegna losunar á blaða- og pappaúrgagni við fjölbýli
Tillaga Bjartrar Framtíðar vegna losunar á blaða- og pappaúrgagni við fjölbýli verði fjölgað.
Umhverfisnefnd leggur til að tækni- og umhverfissvið kanni kostnað og leiðir til bóta.