4. (1770). fundur
4. (1770). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
31.01.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Guðfinna Björk Kristjánsdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1612169
01
Brekkugata 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GX-byggingum ehf., kt. 620310-1740, leyfi til að byggja íbúð í parhúsi að Brekkugötu 17.
Málsnúmer 1612171
02
Brekkugata 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GX-byggingum ehf., kt. 620310-1740, leyfi til að byggja íbúð í parhúsi að Brekkugötu 19.
Málsnúmer 1701225
03
Kauptún 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fasteignafélaginu Sýslu ehf., kt. 640106-0180 leyfi til framkvæmda við stækkun á húsnæði að Kauptúni 3.
Málsnúmer 1701193
04
Sunnuflöt 30 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Björnssyni, kt. 311077-5389, leyfi fyrir viðbyggingu við einbýlishúsið að Sunnuflöt 30.
Málsnúmer 1608250
05
Súlunes 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birni H. Eiríkssyni, kt. 020448-2029, leyfi til að stækka bílskúr við einbýlishúsið að Súlunesi 18.
Málsnúmer 1701282
06
Erindi frá nemendum og kennurum á heilbrigðisviði Háskólans á Akureyri um styrk til verkefnisins "Einn blár strengur".
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar mannréttinda- og forvarnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701301
07
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 20.01.17.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 7.443.672 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála og áhaldahúsi.
Málsnúmer 1701308
08
Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit, dags. 19.01.17.
Málsnúmer 1701313
09
Drög að samningi Garðabæjar og Vegagerðarinnar um eftirlit og útkallsþjónustu fyrir vetrarþjónustu í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701300
10
Drög að samkomulagi við Hjallastefnuna um rekstur leikskóla.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701366
11
Úthlutun hesthúsalóða á Kjóavöllum.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir áhuga aðila á að sækja um hesthúsalóðir á Kjóavöllum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701306
13
Bréf Kópavogsbæjar um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs, dags. 20.01.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701275
14
Bréf Hjallastefnunnar um endurnýjun samnings um lóðaafnot á Vífilsstöðum, dags. 26.01.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1609138
15
Tillaga dómnefndar um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness um endurskoðun á fjárhæð verðlauna, dags. 25.01.17
Í tillögunni er lagt til að hækka heildarverðlaunafé í framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag miðsvæðis Álftaness verði hækkað og verði ekki lægra en kr. 6.000.000 eins og í fyrri samkeppni.
Bæjarráð samþykkir að heildarverðlaunafé í framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag samkvæmt samningi við Arkitektafélag Íslands verði kr. 7.000.000 án vsk og skulu fyrstu verðlaun ekki vera lægri en kr. 4.000.000.
Málsnúmer 1611246
16
Listi yfir störf sem falla undir undanþáguheimild vegna töku verkfalls.
Bæjarráð samþykkir lista yfir störf sem falla undir undanþáguheimild vegna töku verkfalls samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.