13. (796). fundur
13. (796). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
15.09.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. september 2016 er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 6/9 ´16.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 11. tl. undirbúning framkvæmda við endurbætur á sundlauginni við Ásgarð. Fram kom hjá bæjarstjóra að kostnaðaráætlun væri um 550,0 - 600,0 mkr og nú sé verið að ganga frá samningum um alla hönnun og eftirlit sem er um 10% af heildarkostnaði.
Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.
1.2 - 1503196 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 - viðaukar 3 - 9.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 3: Ísafold 100,0 mkr
Viðauki 4: Sumarátak 51,0 mkr
Viðauki 5: Fjölgun nemenda og sérkennsla 40,0 mkr
Viðauki 6: Leikskólinn Ásar - sérkennsla 12,0 mkr
Viðauki 7: Barnavernd og liðveisla 17,0 mkr
Viðauki 8: Heimaþjónusta 16,0 mkr
Viðauki 9: Hækkun útsvars 240,0 mkr
Útgjaldaaukningu samkvæmt viðaukum 3-8 verður mætt með hækkun útsvarstekna, sbr. viðauki 9.
Fylgiskjöl
1.6 - 1604016 - Samningur við skátafélögin um bætt aðgengi o.fl. varðandi húsnæði félaganna við Bæjarbraut.
Bæjarstjórn samþykkir samning við skátafélögin um bætt aðgengi og viðhaldsframkvæmdir við skátaheimilið við Bæjarbraut.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 13/9 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 10 tl., miðsvæði Álftaness ? uppbyggingu og endurskoðun og kynnti tillögu um að efna til samkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir svæðið en tillagan er á dagskrá fundarins samkvæmt dagskrárlið 13.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál og lýsti yfir stuðningi við tillöguna.
Viktoría Jensdóttir, ræddi sama mál og lýsti yfir stuðningi við tillöguna.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
2.7 - 1609094 - Bréf Samtaka sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins varðandi samstarfssamning um rekstur skíðasvæða, dags. 07.09.16.
Bæjarstjórn samþykkir samstarfsamning sveitarfélaga um rekstur skíðasvæða með fyrirvara um að hann verði samþykktur í öllum aðildarsveitarfélögunum.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð afmælisnefndar frá 17/8 ´16.
Guðrún Elín Herbertsdóttir kvaddi sér hljóðs og ræddi útgáfu afmælisrits.
Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og þakkaði afmælisnefndinni fyrir skemmtilega afmælishátíð.
Til máls tóku einnig Jóna Sæmundsdóttir, Áslaug Hulda Jónsdóttir, Gunnar Valur Gíslason, Halldór Jörgensson, og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 8/9 ´16.
Viktoría Jensdóttir, ræddi 2. tl., reglur um forgang að leikskólum og 4. tl., reglur um skipan fulltrúa sem sitja fundi leikskólanefndar og eru ekki kosnir af bæjarstjórn.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 7/9 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 7/9 ´16.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., skýrslur vegna þróunarsjóðs 2015-2016.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar SSH frá 5/9 ´16.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., málefni endurvinnslustöðva.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., samráðsvettvang SSH á sviði velferðarmála.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 31/8 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
11
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 26/8 ´16.
Viktoría Jensdóttir, 3. tl., gæludýr í strætó.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl. gæludýr í strætó, 4. tl., borgarlínu, 7. tl., húsnæðismál Strætó bs., 8. tl., niðurstöður í vagnakaupaútboði.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., gæludýr í strætó.
Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., gæludýr í strætó. Þá ræddi bæjarstjóri um úttektir sem gerðar hafa verið á starfsemi byggðasamlaganna.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
12
Kosning aðal- og varafulltrúa í fastanefndir.
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
Þóroddur Bjarnason, Greniási 5 verður aðalmaður í stað Guðrúnar Sesselju Arnardóttur, sem flutt er úr bænum.
Erling Jóhannesson, Holtsbúð 21, verður varamaður í stað Steingríms Eyjólfssonar.
Mannréttinda- og forvarnarnefnd
Sólveig Guðrún Geirsdóttir, Þrastanesi 6, sem er varamaður verður aðalmaður í stað Þórarins S, Sigurgeirssonar, sem fluttur er úr bænum.
Laufey Johansen, Árakri 1, verður varamaður í stað Sófusar Gústafssonar sem er nú aðalmaður.
Karl Jónas Smárason, Hrísmóum 9 verður varamaður í stað Sólveigar Guðrúnar Geirsdóttur sem nú er aðalmaður.
Nefnd um málefni eldri borgara.
Erna Indriðadóttir, Nýhöfn 1 verður aðalmaður í stað Hildar Jakobínu Gísladóttur, sem flutt er úr bænum.
Íþrótta- og tómstundaráð
Karl Jónas Smárason, Hrísmóum 9 verður varamaður í stað Hildar Jakobínu Gísladóttur, sem flutt er úr bænum.
Skólanefnd grunnskóla
Sigríður Erla Jónsdóttir, Brúnási 20 verður aðalmaður í stað Hildar Jakobínu Gísladóttur, sem flutt er úr bænum.
13
Tillaga um að efna til framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
„Bæjarstjórn samþykkir að efna til framkvæmdasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
Skipa skal fimm manna dómnefnd vegna samkeppninnar og skal hún skipuð þremur fulltrúum frá Garðabæ og tveimur fulltrúum frá Arkitektafélagi Íslands. Einn fulltrúi Garðabæjar skal skipaður samkvæmt tilnefningu Íslandsbanka sem er landeiganda að hluta.
Dómnefndin skal semja keppnislýsingu og gera nánari afmörkun á skipulagsvæðinu.“
Greinargerð.
Á árinu 2008 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Álftaness nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness. Samkvæmt skipulaginu átti að byggja um 300 íbúðir á svæðinu ýmist sem fjölbýlishús eða sérbýli í raðhúsum eða klasabyggingum.
Þá gerði skipulagið ráð fyrir opinberum byggingum fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins ásamt verslun og blandaðri þjónustu. Einnig voru afmörkuð svæði fyrir náttúru- og menningarsetri, hóteli, ráðstefnu- og ferðamannaþjónustu.
Við sameiningu sveitarfélaganna Álftaness og Garðabæjar hafa forsendur breyst sem kalla á að endurskoða gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Við þá endurskoðun er rétt að gera nánari afmörkun á svæðinu m.a. með því að skipulagsvæðið nái einnig til lands við Kirkjubrú.
Lagt er til að það verði gert með opinni framkvæmdasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands þar sem leiðarljós verður að leggja grunn að metnaðarfullri byggð fyrir fjölskyldufólk ásamt því að tryggja að umhverfið beri einkenni byggðar á Álftanesi „sveit í borg“.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.