40. (1757). fundur
40. (1757). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
18.10.2016
Kl. 08:00 - 08:35
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Austurhraun 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Marel hf., kt. 620483-0369, byggingarleyfi vegna stækkunar á innra rými húsnæðis við Austurhraun 9.
02
Hliðsvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Landnámi ehf., kt. 640295-2529 byggingarleyfi til að byggja gistihús með 6 gistieiningum að Hliðsvegi 1, Álftanesi.
03
Hraungata 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hrafni Guðmundssyni, kt. 311283-2199 byggingarleyfi til að byggja einbýlishús við Hraungötu 12.
04
Markarflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Konrad Garðari Aðalmundssyni, kt. 210771-4689 byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Markarflöt 4.
05
Bréf Snorrasjóðs um styrk vegna Snorraverkefnis 2017, dags. 06.10.16.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
06
Erindi ReykjavíkurAkademíunnar um stuðning við málþing um fjölmiðlun í almannaþágu, dags. 11.10.16.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um forkynningu á tillögu að endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna íbúum tillögu og forsendur að nýju aðalskipulagi ásamt skýrslu um umhverfismat, eins og mælt er fyrir um 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt á íbúafundi. Einnig skal hún kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
08
Svar við fyrirspurn um svæði þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir, dags. 13.10.16.
Lagt fram.
10
Tilkynning frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um stöðu mála varðandi samkomulag um samræmt lífeyriskerfi, dags 12.10.16.
Lögð fram.
Í tilkynningunni er m.a. vísað til erinda lífeyrissjóða um hækkun á mótframlagi vegna lífeyrissjóðsiðgjalda.
Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
11
Tilkynning frá velferðarráðuneytinu varðandi upplýsingar um þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk, dags. 06.10.16.
Lögð fram.
12
Skipun fulltrúa í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - ábendingar frá íbúum.
Lagðar fram og kynntar ábendingar sem borist hafa frá íbúum í tengslum við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
14
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi tillögur að gjaldskrám, dags.14.10.16.
Bæjarráð vísar gjaldskrám heilbrigðiseftirlits til afgreiðslu bæjarstjórnar.