35. (1752). fundur
35. (1752). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
13.09.2016
Kl. 08:00 - 09:10
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1609002
01
Málefni Strætó bs.
Á fund bæjarráð mætti Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Jóhannes Svavar gerði grein fyrir rekstrarafkomu félagsins, fjallaði um leiðakerfið í Garðabæ, akstursþjónustu fatlaðs fólks og sagði frá stöðu dómsmála sem rekin hafa verið vegna útboðsmála Strætó bs.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 1605502
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - drög að forsendum og tíma- og vinnuferli.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir drögum að forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 og lagði fram yfirlit yfir tíma- og vinnuferli.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605002
03
Kauptún 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fasteignafélaginu Sýslu ehf., kt. 640106-0180 nýtt byggingarleyfi vegna breytinga og viðbygginga við Kauptún 3. Í leyfinu felst minnkun á byggingarmagni frá áður útgefnu leyfi.
Málsnúmer 1609048
04
Bréf innanríkisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis um hvatningu til ungs fólks um þátttöku í kosningum, dags. 26.08.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar, ungmennaráðs og mannréttinda- og forvarnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603177
05
Greinargerð upplýsingastjóra um námsferð til kynningar á íbúalýðræði í sænskum sveitarfélögum.
Bæjarráð vísar greinargerðinni til nánari skoðunar hjá ungmennaráði og mannréttinda- og forvarnanefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1609092
06
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2016, dags. 07.09.16.
Málsnúmer 1609094
07
Bréf Samtaka sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins varðandi samstarfssamning um rekstur skíðasvæða, dags. 07.09.16.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn með fyrirvara um að hann verði samþykktur í öllum aðildarsveitarfélögunum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1609099
08
Bréf innanríkisráðuneytisins um ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2016, dags. 06.09.16.
Málsnúmer 1509059
09
Framkvæmdir við hljóðvarnir o.fl. við neðra Lundahverfi
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að undirbúa gerð útboðsgagna vegna framkvæmda við hljóðvarnir við neðra Lundahverfi samkvæmt fyrirliggjandi uppdrætti.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1609138
10
Miðsvæði Álftaness - uppbygging og endurskoðun deiliskipulags
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að efna til framkvæmdasamkeppni um endurskoðun deiliskipulag miðsvæðis Álftaness og nálægðra svæða. Samkeppnin skal vera í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og Íslandsbanka sem er eigandi um 3,48 ha lands á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa tillögu til afgreiðslu í bæjarstjórn um að efna til framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.