Beint í efni

Höll á Garðaholti, breyting á dsk Garðahverfis

Málsnúmer 1703099

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (836). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir stækkun á deiliskipulagssvæði við Grænagarð.

Bæjarráð Garðabæjar

02

37. (1852). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir stækkun á deiliskipulagssvæði við Grænagarð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

Lögð fram drög að tillögu á breytingu deiliskipulags Garðahverfis sem gerir ráð fyrir því að skipulagssvæðið stækki um tæpan hektara vestan Grænagarðs og þar verði gert ráð fyrir byggingarreitum í námunda við bæjarstæði fornbýlisins Hallar. Um leið yrði fornbýlið Höll eitt af þeim býlum sem deiliskipulagið gerir ráð fyrir sem hluta af því búsetulandslagi sem markmiðið er að varðveita.
Lögð fram umsögn aðalskipulagsráðgjafa sem mælir ekki með því að svæði þessu verði ráðstafað fyrr en fyrir liggur með hvaða hætti Garðaholt verður skipulagt annað hvort í rammaskipulagi eða deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í framlagða umsögn.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga Hólmfríðar Sigurðardóttur Þorkelssonar í Grænagarði og Ágústs Þórs Gunnarssonar að deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Garðahverfis þar sem gert er ráð fyrir stækkun deiliskipulagssvæðis sem nemur um einum hektara utan við Grænagarð efst á Garðaholti. Bætt yrði við býlinu Höll sem áður stóð á þessum stað sem eitt af þeim býlum sem deiliskipulagið nær til. Þar yrði gert ráð fyrir þremur byggingarreitum eins og við önnur bæjarstæði þar sem bæjarhús eru horfin.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Garðahverfis sem gerir ráð fyrir stækkun deiliskipulagssvæðis vestan við Grænagarð og byggingarreitum hjá bæjarstæði hjáleigunnar Hallar. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

06

16. (1782). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

5. fundur

Lögð fram ósk erfingja Sigurðar Þorkelssonar um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir því að við Grænagarð verði gert ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir íbúðarhús eins og á býlum í Garðahverfi.
Svar: Við skipulagsgerð Garðahverfis var ákveðið að fella Grænagarð inn í skipulagssvæðið til þess að vernda skógræktina sem framtíðar útivistarsvæði og grænan reit sem tengi saman Garðahverfið og fyrirhugaða íbúðarbyggð í Garðaholti. Grænigarður er ekki eitt af hinum fornu lögbýlum í Garðahverfi en eitt af meginmarkmiðum deiliskipulagsins er að varðveita hið forna búsetulandslag og byggðamynstur sem einkennir Garðahverfið. Ákvæði um Grænagarð miða að því að viðhalda skóginum til sem þar hefur verið ræktaður til almenningsnota og frekari íbúðarbyggingar þar eru ekki líklegar til þess að styðja við það markmið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

4. fundur

Erindi erfingja Sigurðar Þorkelssonar lagt fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

09

10. (1776). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.