7. (829). fundur
7. (829). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
03.05.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. apríl 2018 er lögð fram.
María Grétarsdóttir kvaddi sér hljóðs með vísan til 7. tl., fundargerðar Strætó og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Mikilvægt er að hafa framtíðarsýn í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu og því nauðsynlegt fyrir okkur að ákveða með hvaða hætti við bætum umferðarmenningu í nærsamfélaginu okkar. Borgarlína hefur verið nefnd til sögunnar í þessu samhengi.
Í fundargerðum stjórnar Strætó á árinu 2016 er rætt um mikilvægi þess að skipulega verði unnið að því á vettvangi SSH að tryggja að hugmyndir um Borgarlínu verði að veruleika. Stjórn leggur áherslu á að uppbygging forgangsakreina sé lykillinn að aðlögun leiðakerfis að Borgarlínu, styttingu ferðatíma og lækkun kostnaðar. Uppbygging hágæðaalmenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með Borgarlínu í náinni framtíð sé mikilvægt hagsmunamál fyrir íbúa allra sveitarfélaga á svæðinu. Lögð eru fram drög að greinargerð um leiðakerfisbreytingar og framtíðarsýn í aðlögun leiðakerfis að Borgarlínu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins ásamt framkvæmdaráætlun.
Framkvæmdastjóra Strætó er falið að hefja undirbúning að gerð áhættumats í tengslum við frekari útboð Strætó á akstri á höfuðborgarsvæðinu þar sem m.a. sé metin áhætta sem felst í frekari fjárskuldbindingu Strætó af auknum verktakaakstri á komandi árum og áætluð séu áhrif aukins verktakaaksturs á rekstrarkostnað og fjárfestingarþörf byggðasamlagsins. Jafnframt sé horft til þess að uppbygging Borgarlínu sé nú til umræðu, samningur við ríkið um eflingu almenningssamgangna renni út á árinu 2022 og að óvissa ríki um fjárframlag ríkisins til þess verkefnis eftir það.
Í árslok 2015 fór fram útboð á akstri hjá Strætó bs að allt að 50% hlutdeild í heildarumfangi aksturs hjá Strætó. Í maí 2016 eru gerðir viðaukasamningar við verktakana í kjölfar bréf ríkisskattstjóra varðandi að aðkeypt akstursþjónusta skuli undanþegin virðisaukaskatti. Í stað lækkunar samninga um virðisauka upp á 11% eru þeir lækkaðir um 2% þ.e.a.s. hækkaðir um 9%. Á árinu 2017 nemur þessi 9% hækkun um 300 milljónum króna og á samningstímanum því um 1,5 milljarð króna.
Áform Strætó um aukinn verktakaakstur á komandi árum vekur upp spurningar. Er hagstæðasta rekstrarform Strætó einkavæðing sem hæglega getur leitt til einokunar þar sem ætla má að ekki sé um mörg fyrirtæki að ræða í litlu landi sem hefðu bolmagn í að taka þátt í slíku útboði. Mikil eftirspurn er eftir gagnsæi í stjórnsýslunni og ekki minni eftir raunverulegri hagræðingu og lækkun kostnaðar. Ekki liggur ljóst fyrir í mínum huga að borgarlína og einkavæðing akstursflotans sé skynsamlegasta leiðin í þessu samhengi."
Dagskrá
Málsnúmer 1804005F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 10/4 ´18.
Steinþór Einarsson, ræddi 8. tl., svar við fyrirspurn um framkvæmdir við Móaflöt og lagði áherslu á að íbúar séu ávallt vel upplýstir tímanlega um verk sem verið er að vinna hverju sinni.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 13. tl., bréf Hagkaups um rekstur vínbúðar við Litlatún.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 13. tl., bréf Hagkaups um rekstur vínbúðar við Litlatún.
Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., bréf Hagkaups um rekstur vínbúðar við Litlatún.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 13. tl., bréf Hagkaups um rekstur vínbúðar við Litlatún.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 2. tl., umsókn um byggingarleyfi vegna framkvæmda við Álftanesskóla og greindi frá að tilboð í verkið hafi verið opnuð í dag. Þá ræddi bæjarstjóri 13. tl., bréf Hagkaups um rekstur vínbúðar við Litlatún.
María Grétarsdóttir, ræddi 13. tl., bréf Hagkaups um rekstur vínbúðar við Litlatún.
Fundargerðin sem er 20 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1804024F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 17/4 ´18.
Halldór Jörgensson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn varðandi félagsleg húsnæði og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Björt framtíð leggur til að Garðabær forgangsraði skipulagi á fjölbreyttum búsetukostum í bænum. Átt er við fjölgun smærri íbúða og búsetufyrirkomulags sem gagnast geti ungum, öldnum og þeim sem þurfa á félagslegum úrræðum að halda.“
Greinargerð:
Valfrelsi er mikilvægur þáttur í lífsgæðum íbúa. Valfrelsi um skóla hefur reynst vel og verið til fyrirmyndar. Aukið valfrelsi til búsetu er mikilvægt til að sporna við brottflutningi úr bænum. Takmarkað framboð smærri íbúða og fjölbreytts búsetufyrirkomulags hefur leitt til að ungt fólk ásamt umsækjendum félagslegra íbúða hafa þurft að flytjast úr bænum. Af þeim sökum er aldursamsetning íbúa bæjarins orðin grönn í mittið og barnafólki fækkar. Það ætti að vera markmið Garðabæjar að stöðva flótta þessa aldurshóps úr bænum og bjóða búsetukosti fyrir alla. Með því heldur Garðabær áfram að nýta innviðauppbyggingu sína í skólum og stuðlar að því að fleiri fjölskyldur geti nýtt sér valfrelsi um skóla.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til skipulagsnefndar.
María Grétarsdóttir, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn varðandi félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Steinþór Einarsson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Halldór Jörgensson, ræddi að nýju 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu um fjölbreyttan búsetukost til skipulagsnefndar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og 29. tl., svör við fyrirspurn um afgreiðslu mála.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Halldór Jörgensson, ræddi að nýju 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Fundargerðin sem er 30 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1804034F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 24/4 ´18.
Fundargerðin sem er 9 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1804037F
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 26/4 ´18.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 5. tl., ? endurnýjun NPA samnings og hvatti til að gerðir verði nýir samningar við fatlað fólk á grundvelli ný samþykktra laga um málefnið.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804028F
05
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 18/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804009F
06
Fundargerð leikskólanefndar frá 12/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804011F
07
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 11/4 ´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., ályktun ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Almari Guðmundssyni.
"Bæjarstjórn Garðabæjar leggur til að Garðabær setji sér vinnureglur um íbúasamráð sem miða að því að efla lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu. Átt er við skilgreiningu á því af hverju eigi að fara í íbúasamráð, í hvers konar málum og með hvaða hætti. Í markvissu íbúasamráði felst áætlun á frumstigi ákvörðunartöku um tilhögun samráðsins. Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir næsta ár verði sett ákveðin fjárhæð í verkefni sem verða skilgreind nánar og unnin í samráði við íbúa svo sem með rafrænni íbúakosningu."
Greinargerð með tillögu:
Grundvallarskylda sveitarstjórna er að taka ákvarðanir með hliðsjón af þörfum og hagsmunum íbúa og sveitarfélagsins í heild eins og fram kemur í nýútkominni handbók um íbúasamráð og þátttöku íbúa sem Samband íslenskra sveitarfélaga gefur út. Sterk tengsl við íbúa sem þekkja eigin nærumhverfi best skapar forsendur fyrir samráðsmenningu og farsælli ákvarðanatöku. Íbúasamráð á að vera fastur liður í stjórnkerfi sveitarfélaga. Rannsóknir bæði hérlendis og erlendis sýna að sveitarstjórnir sem koma sér upp samráðsmenningu njóta meira trausts meðal íbúa og þar ríkir meiri ánægja með stjórnun og þjónustu.
Garðabær hefur á liðnum árum aukið mjög íbúasamráð. Í kjölfar þjónustukönnunar var utanaðkomandi fagaðili fenginn til að stýra rýnihópum íbúa í því skyni að fá fram hugmyndir til að efla þjónustuna enn frekar. Alls hafa verið haldnir 37 opnir íbúa-, samráðs- og kynningarfundir á undanförnum fjórum árum. Þessir fundir snúa í flestum tilfellum að ákveðnum málefnum sem eru til umræðu og kynningar eða að ákveðnum hverfum bæjarins þar sem málefni sem snúa sérstaklega að viðkomandi svæði eru til umræðu.
Flestir opnir fundir hafa verið vegna skipulagsmála en einnig hafa verið haldnir opnir íbúafundir um skólamál, fjármál og fjárhagsáætlun, nágrannavörslu og öryggi íbúa, íþrótta og tómstundamál, menningarmál, umhverfismál og fleiri málefni. Þessi nálgun hefur sannanlega skilað hugmyndum sem hefur verið hrint í framkvæmd, ábendingum sem tekið hefur verið tillit til og auðvitað ekki síst góðu og opnu samtali.
Markmiðið með tillögunni er að áfram verði unnið að því að efla íbúasamráð, setja það í formfastari farveg og leita nýrra leiða í samtali við íbúa.
Steinþór Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
María Grétarsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Halldór Jörgensson, ræddi framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu.
Halldór Jörgensson, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Sturla Þorsteinsson, ræddi framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og gerði athugasemd við að ekki liggi fyrir tillaga um að vísa framkominni tillögu í ákveðinn farveg.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um að Garðabær setji sér vinnureglur um íbúasamráð til bæjarráðs.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804018F
08
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 13/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804039F
09
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 25/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1803018F
10
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 22/3 ´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla 2018.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla 2018.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804017F
11
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 16/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804008F
12
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 12/4 ´18.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., foreldrakönnun og óskaði skólanum til hamingju með mjög svo jákvæða afstöðu foreldra til starfsemi skólans.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804016F
13
Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804006F
14
Fundargerð umhverfisnefndar frá 9/4 ´18.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða - synjun á styrk til strandstígs á Álftanesi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða - synjun á styrk til strandstígs á Álftanesi, 2. tl., hjóla og gönguteljarar og 4. tl. umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða - samþykkt á styrk til lagfæringar á stíg í Búrfellsgjá.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804035F
15
Fundargerð ungmennaráðs frá 5/3 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1804036F
16
Fundargerð ungmennaráðs frá 9/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1801362
17
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 13/4 og 25/4 ´18.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi söfnun og flokkun plasts.
Sturla Þorsteinsson, ræddi söfnun og flokkun plasts. Þá ræddi Sturla 2. tl.,í fg frá 13/4 stöðu í samningskaupaviðræðum vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar og 4. tl., efnismiðlun Góða hirðisins.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 1802195
18
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 5/4 ´18.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., stefnumótun skíðasvæða.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1801175
19
Fundargerð stjórnar SSH frá 9/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1801146
20
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 13/4 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1801001
21
Kosning fulltrúa í kjörstjórnir vegna kosninga til sveitarstjórnar 2018.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í hverfiskjörstjórn á Álftanesi.
Sigþrúður Ármann, formaður, Hraunhólum, 23, Lúðvík Hjalti Jónsson, Lindarflöt 27, Andrés Sigurðsson,Hólmatún 31
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í undirkjörstjórnir.
Anna Lena Halldórsdóttir, Hallakri 2b, Anna Margrét Halldórsdóttir, Kríunesi 14, Anna R. Möller, Strandvegur 12, Ásgeir Örn Sigurpálsson, Skógarhæð 6, Bjarni Jónsson, Ásbúð 8,
Daníel Jósefsson, Kjarrmóum 39, Davíð Halldórsson, Bæjargili 17, Davíð Ó Sigurbergsson, Lyngmóum 7, Dóra Viðarsdóttir, Seinakri 1, Dóra Þórisdóttir, Espilundi 10, Erna Björk Ásbjörnsdóttir, Kjarrmóum 39, Fanney Óskarsdóttir, Steinási 4, Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, Strandvegur 10, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Lindarflöt 50, Guðrún Helga Sigurðardóttir, Löngufit 12, Guðrún Jónsdóttir, Krókamýri 76, Gunnhildur Eva Arnoddsóttir, Hagaflöt 4, Gunnsteinn Geirsson, Hagaflöt 4, Halla Þórisdóttir, Heiðarlundi 21, Helga G. Sigurðardóttir, Bæjargili 29, Herdís Jónsdóttir, Hæðarbyggð 5, Herdís Sigurbergsdóttir, Línakri 3, Hildur Benediktsdóttir, Gimli, Hilmar Kristjánsson, Kjarrmóum 10, Hilmar Þór Sigurjónsson, Kríunesi 3, Íris Rut Erlingsdóttir, Furuási 2, Katrín Halldórsdóttir, Einilundi 7, Kristjana Kjartansdóttir, Línakri 1, Kolbrún Sigmundsdóttir, Hofakri 3, Margrét Sæmundsdóttir, Brekkubyggð 33, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, Ásbúð 8, Ragnheiður Stephensen, Löngumýri 57, Sigríður Anna Ásgeirsdóttir, Bæjargili 126, Sigríður Dís Guðjónsdóttir, Löngulínu 19, Sigrún Helga Pétursdóttir, Löngumýri 59, Skarphéðinn Jónsson, Strandvegur 10, Snædís Björnsdóttir, Nónhæð 2, Sunna G. Sigurðardóttir, Smáraflöt 49, Vala Dröfn Hauksdóttir, Móaflöt 37, Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir, Hörgslundi 17, Anna Kristmundsdóttir, Asparholti 1, Auður Björgvinsdóttir, Hrísmóum 9, Guðfinna Dröfn Aradóttir, Hólmatúni 8, Guðríður Eyvindardóttir, Hólmatúni 43, Hildur Katla Guðmundsdóttir, Vesturtúni 18, Hjördís Jóna Gísladóttir, Hólmatúni 31, Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Birkiholti 6, Kristín Rós Björnsdóttir, Sjávargötu 22, Sigríður Rósa Magnúsdóttir, Arnarási 6, Sæunn Eiríksdóttir, Strandvegi 26.