Fundargerð bæjarráðs frá 17/4 ´18.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (829). fundur
Halldór Jörgensson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn varðandi félagsleg húsnæði og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Björt framtíð leggur til að Garðabær forgangsraði skipulagi á fjölbreyttum búsetukostum í bænum. Átt er við fjölgun smærri íbúða og búsetufyrirkomulags sem gagnast geti ungum, öldnum og þeim sem þurfa á félagslegum úrræðum að halda.“
Greinargerð:
Valfrelsi er mikilvægur þáttur í lífsgæðum íbúa. Valfrelsi um skóla hefur reynst vel og verið til fyrirmyndar. Aukið valfrelsi til búsetu er mikilvægt til að sporna við brottflutningi úr bænum. Takmarkað framboð smærri íbúða og fjölbreytts búsetufyrirkomulags hefur leitt til að ungt fólk ásamt umsækjendum félagslegra íbúða hafa þurft að flytjast úr bænum. Af þeim sökum er aldursamsetning íbúa bæjarins orðin grönn í mittið og barnafólki fækkar. Það ætti að vera markmið Garðabæjar að stöðva flótta þessa aldurshóps úr bænum og bjóða búsetukosti fyrir alla. Með því heldur Garðabær áfram að nýta innviðauppbyggingu sína í skólum og stuðlar að því að fleiri fjölskyldur geti nýtt sér valfrelsi um skóla.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til skipulagsnefndar.
María Grétarsdóttir, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn varðandi félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Steinþór Einarsson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Halldór Jörgensson, ræddi að nýju 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu um fjölbreyttan búsetukost til skipulagsnefndar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði og 29. tl., svör við fyrirspurn um afgreiðslu mála.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Halldór Jörgensson, ræddi að nýju 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 28. tl., svör við fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Fundargerðin sem er 30 tl., er samþykkt samhljóða.