Beint í efni

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 11/4 ´18.

Málsnúmer 1804011F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (829). fundur

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., ályktun ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Almari Guðmundssyni.

"Bæjarstjórn Garðabæjar leggur til að Garðabær setji sér vinnureglur um íbúasamráð sem miða að því að efla lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu. Átt er við skilgreiningu á því af hverju eigi að fara í íbúasamráð, í hvers konar málum og með hvaða hætti. Í markvissu íbúasamráði felst áætlun á frumstigi ákvörðunartöku um tilhögun samráðsins. Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir næsta ár verði sett ákveðin fjárhæð í verkefni sem verða skilgreind nánar og unnin í samráði við íbúa svo sem með rafrænni íbúakosningu."

Greinargerð með tillögu:
Grundvallarskylda sveitarstjórna er að taka ákvarðanir með hliðsjón af þörfum og hagsmunum íbúa og sveitarfélagsins í heild eins og fram kemur í nýútkominni handbók um íbúasamráð og þátttöku íbúa sem Samband íslenskra sveitarfélaga gefur út. Sterk tengsl við íbúa sem þekkja eigin nærumhverfi best skapar forsendur fyrir samráðsmenningu og farsælli ákvarðanatöku. Íbúasamráð á að vera fastur liður í stjórnkerfi sveitarfélaga. Rannsóknir bæði hérlendis og erlendis sýna að sveitarstjórnir sem koma sér upp samráðsmenningu njóta meira trausts meðal íbúa og þar ríkir meiri ánægja með stjórnun og þjónustu.
Garðabær hefur á liðnum árum aukið mjög íbúasamráð. Í kjölfar þjónustukönnunar var utanaðkomandi fagaðili fenginn til að stýra rýnihópum íbúa í því skyni að fá fram hugmyndir til að efla þjónustuna enn frekar. Alls hafa verið haldnir 37 opnir íbúa-, samráðs- og kynningarfundir á undanförnum fjórum árum. Þessir fundir snúa í flestum tilfellum að ákveðnum málefnum sem eru til umræðu og kynningar eða að ákveðnum hverfum bæjarins þar sem málefni sem snúa sérstaklega að viðkomandi svæði eru til umræðu.
Flestir opnir fundir hafa verið vegna skipulagsmála en einnig hafa verið haldnir opnir íbúafundir um skólamál, fjármál og fjárhagsáætlun, nágrannavörslu og öryggi íbúa, íþrótta og tómstundamál, menningarmál, umhverfismál og fleiri málefni. Þessi nálgun hefur sannanlega skilað hugmyndum sem hefur verið hrint í framkvæmd, ábendingum sem tekið hefur verið tillit til og auðvitað ekki síst góðu og opnu samtali.
Markmiðið með tillögunni er að áfram verði unnið að því að efla íbúasamráð, setja það í formfastari farveg og leita nýrra leiða í samtali við íbúa.

Steinþór Einarsson, ræddi framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

María Grétarsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

Halldór Jörgensson, ræddi framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu.

Halldór Jörgensson, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Sturla Þorsteinsson, ræddi framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og gerði athugasemd við að ekki liggi fyrir tillaga um að vísa framkominni tillögu í ákveðinn farveg.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um að Garðabær setji sér vinnureglur um íbúasamráð til bæjarráðs.

Fundargerðin er lögð fram.