Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 1711043

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (1832). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um fjölgun íbúða við Urriðaholtsstræti 34 úr 12 í 15 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 796.995 á íbúð m.v. BVT 688,4 í maí 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

8. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulag þar sem m.a. er óskað eftir að fjölga íbúðum úr 12 í 15. Á fundi skipulagnefndar 9. mars var samþykkt með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa breytingartillöguna. Samþykktin var staðfest í bæjarstjórn 15. mars 2018. Auglýsingin stóð frá 26.mars til 7. maí. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sbr. 1.mgr.43.gr.skipulagslaga.
Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. (827). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15.

Bæjarráð Garðabæjar

04

10. (1825). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 794.217 á íbúð m.v. BVT 686,0 stig í mars 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sem gerir m.a. ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf þar sem gerðar eru tillögur að lagfæringu á tillögunni. Breytingartillögunni með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn er vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 . Skipulagsnefnd mælir með því að skipulagshöfundur gangi frá breytingarupprætti áður en tillagan er auglýst. Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í fjölbýlishúsinu Urriðaholtsstræti úr 12 í 15. Sýnir hönnuður hússin fram á að það stuðli að betri lausn á skipulagi húss og lóðar. Skipulagsnefnd vísar tillögu að fjölgun íbúða og aukningu byggingarmagns neðanjarðar til umsagnar Urriðaholts ehf. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

15. fundur

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissvið.