Beint í efni

2. fundur

16.01.2018
Skipulagsnefnd Garðabæjar

2. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í endanum 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.01.2018

Kl. 09:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1504148

01

Lundahverfi - nýtt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lunda að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.

Skipulagsnefnd leggur til að komið verði til móts við athugasemdir varðandi ákvæði um bifreiðageymslur og fyrsta málsgrein greinar 2.2.4. hljóði svo: Á hverri lóð fyrir einbýlishús, raðhús eða parhús skal gert ráð fyrir 2 bílastæðum á lóð og bifreiðargeymslu fyrir a.m.k. eina bifreið. Fella skal út síðustu málsgrein greinarinnar.

Koma skal til móts við ábendingu um göngustíg framan við raðhúsalóðir við Reynilund, Hörgslund og Hofslund og gera ráð fyrir göngustíg þar.

Komið skal til móts við athugasemdir með eftirfarandi breytingum á ákvæðum um lóð fyrir samfélagsþjónustu (Lundaból) með eftirfarandi breytingum:

Grein 3.1.4 Bílastæði hljóði svo: Á lóðinni verði heimilt að koma fyrir allt að 30 bílastæðum en fjölda bílastæða skal að öðru leyti ákvarða í samræmi við starfsemi á lóðinni á hverjum tíma. Við lóðarhönnun skal með gróðri, skjólveggjum og landlagsmótun dregið úr áhrifum bílaumferðar á bílastæðum á lóðum aðliggjandi húsa við Einilund.

Eftirfarandi grein bætist við og hljóði svo. 3.1.6. Leikskólalóð og opið svæði. Tillögur að breytingum á útfærslu leikskólalóðar og hins opna svæðis á Hofstaðahæð skulu kynntar eigendum og íbúum aðliggjandi lóða ef sótt verður um byggingarleyfi fyrir stækkun leikskólans og áður en slíkt leyfi yrði veitt.

Grein 3.2.3. hljóði svo: Hámarksbyggingarmagn verði 1000 m2 á einni hæð.

Á deiliskipulagsuppdrætti skal aðeins sýna núverandi bílastæði en lóðaruppdrættir vegna byggingarleyfisumsóknar skal grenndarkynna sbr, grein 3.1.6.

Skipulagsnefnd samþykkir að gera ofangreindar breytingar á tillögu að deiliskipulagi Lunda og vísar tillöunni til auglýsingar að nýju þar sem um grundvallar breytingu á áður auglýstri tillögu er að ræða.

Málsnúmer 1711043

02

Urriðholtsstræti 34 - umsókn um fjölgun íbúða

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í fjölbýlishúsinu Urriðaholtsstræti úr 12 í 15. Sýnir hönnuður hússin fram á að það stuðli að betri lausn á skipulagi húss og lóðar. Skipulagsnefnd vísar tillögu að fjölgun íbúða og aukningu byggingarmagns neðanjarðar til umsagnar Urriðaholts ehf. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1711103

03

Keldugata 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram ósk um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir breyttum þakhalla á anddyri. Skipulag segir 10-45°. Óskað er eftir að fara með halla á hluta af þaki í 0°. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við samþykkt byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. þar sem að um óverulegt frávik er að ræða sbr. 3.mgr.sömu greinar. Tillagan uppfyllir að öllu leyti kröfur deiliskipulagsins um vandaða hönnun og uppbrot ytra byrðis. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1801191

04

Vinstræti, 2-18, tilfærsla byggingarmagns

Aðalsteinn Snorrason arkitekt hjá Arkís gerði grein fyrir tillögum að breytingum á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta sem gera ráð fyrir að mega færa allt að 500 m2 af fyrirliggjandi byggingarheimildum neðanjarðar yfir í byggingaheimildir ofan jarðar.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipualaginu og vísar henni til grenndarkynningar. Skipualagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef samþykki þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Vinastræti 1-3, Vinastræti 22-28 og Urriðaholtsstrætis 40-42.

Málsnúmer 1711323

05

Þrastanes 12 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að nýbyggingu á óbyggðri íbúðarhúslóð. Tillagan er í samræmi við auglýsta tillögu að deiliskipulagi Arnarness.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi.

Grenndarkynna skal eigendum Þrasaness 7, 8, 9,10, 11 og 14 sem og Haukaness 7, 9, 11 og 13.

Málsnúmer 1712078

06

Skipulags- og umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu

Lagt fram.

Málsnúmer 1703047F

07

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 1

Lögð fram fundargerð 1.afgreiðslufundar skipulagsstjóra árið 2017 í samræmi 3.gr. í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr.20/2017.

Málsnúmer 1706017F

08

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 2

Lögð fram fundargerð 2.afgreiðslufundar skipulagsstjóra árið 2017 í samræmi 3.gr. í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr.20/2017.

Málsnúmer 1706022F

09

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 3.

Lögð fram fundargerð 3.afgreiðslufundar skipulagsstjóra árið 2017 í samræmi 3.gr. í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr.20/2017.

Málsnúmer 1709039F

10

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 4

Lögð fram fundargerð 4.afgreiðslufundar skipulagsstjóra árið 2017 í samræmi 3.gr. í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr.20/2017.

Málsnúmer 1712030F

11

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 5

Lögð fram fundargerð 5.afgreiðslufundar skipulagsstjóra árið 2017 í samræmi 3.gr. í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr.20/2017.