Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi háholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 2-18.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
10. (1825). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi háholts Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 2-18 þar sem lagt er til að leyfa tilfærslu á byggingarmagni milli lóða. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Tillaga að tilfærslu byggingarheimilda á lóð Vinastrætis 2-18 lögð fram að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Breytingin skoðast því samþykkt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
2. (824). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna tilflutnings á allt að 500m2 byggingarheimild neðanjarðar í byggingarheimild ofanjarðar á lóðinni við Vinastræti 2-18, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
María Grétarsdóttir, situr hjá.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
04
3. (1818). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna tilflutnings á allt að 500m2 byggingarheimild neðanjarðar í byggingarheimild ofanjarðar, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Aðalsteinn Snorrason arkitekt hjá Arkís gerði grein fyrir tillögum að breytingum á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta sem gera ráð fyrir að mega færa allt að 500 m2 af fyrirliggjandi byggingarheimildum neðanjarðar yfir í byggingaheimildir ofan jarðar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipualaginu og vísar henni til grenndarkynningar. Skipualagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef samþykki þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Vinastræti 1-3, Vinastræti 22-28 og Urriðaholtsstrætis 40-42.