2. (824). fundur
2. (824). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
01.02.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. janúar 2018 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1801043F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 23/1 ´18.
Afgreiðsla mála
Málsnúmer 1801052F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 30/1 ´18.
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri, 6. tl., bréf varðandi breytingar á leiðakerfi Strætó leið 21 og 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og 2. tl., niðurstöður dómnefndar varðandi þátttöku í útboði vegna byggingar fjölnota íþróttahúss.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., framkvæmdaáætlun 2018 og spurði um framkvæmdir við lagfæringar leikskólans Holtakots.
Viktoría Jensdóttir, ræddi 4. tl., framkvæmdaáætlun 2018 og svaraði fyrirspurn.
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og 2. tl., niðurstöður dómnefndar varðandi þátttöku í útboði vegna byggingar fjölnota íþróttahúss., 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi og 5. tl., umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir veitingahús við Garðatorg.
Halldór lagði fram eftirfarandi tillögu:
Í tilefni af fyrsta landsleik Íslands í lokakeppni HM í Rússlandi í sumar, leggur Björt framtíð til að bæjarfélagið beiti sér fyrir skipulagningu viðburðar á Garðatorgi, þar sem íbúum og öðrum áhugasömum verði boðin sýning á leiknum á stórum skjá.
Greinagerð:
Ísland hefur aldrei leikið í lokakeppni á HM. Fyrsti leikur Íslands við Argentínu ber upp laugardaginn 16. júní. Eftirspurn eftir miðum á þennan tiltekna leik er mikil og ljóst að öll þjóðin mun ekki hafa tök á að fljúga til Rússlands. 17. júní hátíðarhöld eru daginn eftir þannig að setja þarf um ýmsan búnað á torginu. Við leggjum til að nýta þetta tækifæri og bjóða bæjarbúum upp á sýningu á leiknum á stórum skjá laugardaginn 16. júní að því gefnu að hagsmunaaðliar á Garðatorgi séu því fylgjandi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi
Steinþór Einarson, ræddi að nýju 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Halldór Jörgensson, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.
Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.
Halldór Jörgensson, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi
Afgreiðsla mála
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu um útsendingar frá HM á Garðatorgi til bæjarráðs.
Málsnúmer 1801047F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 25/1 ´18.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., íbúakönnun, og 3. tl., fjárhagsaðstoð.
Halldór Jörgensson, ræddi 3. tl., fjárhagsaðstoð og spurði um fjölda barnaverndarmála.
Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju og svaraði fyrirspurn
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls og ræddi málefni barna.
María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi málefni barna.
Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801017F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 18/1 ´18.
Viktoría Jensdóttir, ræddi 1. tl., reglur um styrki til náms í leikskólafræðum og 3. tl., leiðir til að efla starfsumhverfi leikskóla.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., leiðir til að efla starfsumhverfi leikskóla.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801049F
05
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar - 28
Viktoría Jensdóttir, ræddi viðburði á vegum menningar- og safnanefndar.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., minjagarð við Hofsstaði
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801042F
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 25/1 ´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., íbúakönnun og vakti athygli á mikilli ánægju meðal íbúa með starfsemi skólanna í bænum. Sigríður Hulda færði starfsmönnum skólanna þakkir fyrir þeirra frábæra starf með börnum og ungmennum sem endurspeglast í ánægju foreldra og forráðamanna. Þá ræddi Sigríður Hulda 6. tl., skólaþing 2018.
María Grétarsdóttir, ræddi 3. tl., framkvæmd og niðurstöður samræmdra prófa í Garðaskóla og 7. tl., þróunarsjóð grunnskóla.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi, 5. tl., tillögur velferðarvaktarinnar um aðgerðir til að auka hlutfall nemenda sem ljúka framhaldskólanámi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., framkvæmd og niðurstöður samræmdra prófa í Garðaskóla og 5. tl., tillögur velferðarvaktarinnar um aðgerðir til að auka hlutfall nemenda sem ljúka framhaldskólanámi og 7. tl., þróunarsjóð grunnskóla.
María Grétarsdóttir ræddi að nýju 7. tl., þróunarsjóð grunnskóla og áherslur í kennslu í upplýsingatækni.
Viktoría Jensdóttir, tók til máls um kennslu í upplýsingatækni.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Halldór Jörgensson, ræddi kennslu í upplýsingatækni.
Almar Guðmundsson tók til máls um skólamál.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801390
07
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/1 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801362
08
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 26/1 ´18.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., niðurstöður útboðs á byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og 6. tl., niðurstöður rannsóknar á böggum sem urðaðir eru í Álfsnesi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801146
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 19/1 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1710169
10
Fjölnota íþróttahús - umsóknir um þátttöku í lokuðu útboði.
Bæjarstjórn samþykkir þátttöku eftirfarandi aðila í lokuðu alútboði vegna byggingar nýs fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379
Eykt ehf., kt. 560192-2319
Ístak hf., kt. 430214-1520
Munck á Íslandi, kt., 701013-0340
Umsókn Mannverks ehf., kt. 411112-0200 er hafnað þar sem hún uppfyllir ekki skilyrði skilmála um nægjanlegt eigið fé.