Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 30/1 ´18.

Málsnúmer 1801052F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (824). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri, 6. tl., bréf varðandi breytingar á leiðakerfi Strætó leið 21 og 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og 2. tl., niðurstöður dómnefndar varðandi þátttöku í útboði vegna byggingar fjölnota íþróttahúss.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., framkvæmdaáætlun 2018 og spurði um framkvæmdir við lagfæringar leikskólans Holtakots.

Viktoría Jensdóttir, ræddi 4. tl., framkvæmdaáætlun 2018 og svaraði fyrirspurn.

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og 2. tl., niðurstöður dómnefndar varðandi þátttöku í útboði vegna byggingar fjölnota íþróttahúss., 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi og 5. tl., umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir veitingahús við Garðatorg.

Halldór lagði fram eftirfarandi tillögu:

Í tilefni af fyrsta landsleik Íslands í lokakeppni HM í Rússlandi í sumar, leggur Björt framtíð til að bæjarfélagið beiti sér fyrir skipulagningu viðburðar á Garðatorgi, þar sem íbúum og öðrum áhugasömum verði boðin sýning á leiknum á stórum skjá.

Greinagerð:
Ísland hefur aldrei leikið í lokakeppni á HM. Fyrsti leikur Íslands við Argentínu ber upp laugardaginn 16. júní. Eftirspurn eftir miðum á þennan tiltekna leik er mikil og ljóst að öll þjóðin mun ekki hafa tök á að fljúga til Rússlands. 17. júní hátíðarhöld eru daginn eftir þannig að setja þarf um ýmsan búnað á torginu. Við leggjum til að nýta þetta tækifæri og bjóða bæjarbúum upp á sýningu á leiknum á stórum skjá laugardaginn 16. júní að því gefnu að hagsmunaaðliar á Garðatorgi séu því fylgjandi.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi

Steinþór Einarson, ræddi að nýju 1. tl., kynningu á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.

Halldór Jörgensson, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.

Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi.

Halldór Jörgensson, ræddi 9. tl., drög að samkomulagi Garðabæjar, Neyðarlínu og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um uppsetningu öryggismyndavélar á Álftanesvegi

Afgreiðsla mála

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu um útsendingar frá HM á Garðatorgi til bæjarráðs.