Beint í efni

3. (1818). fundur

23.01.2018
Bæjarráð Garðabæjar

3. (1818). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

23.01.2018

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - varamaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1708015

01

Hörgatún 19 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Hörgstúni 19.

Málsnúmer 1711103

02

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum varðandi þakhalla við bygging einbýlishússins að Keldugata 15 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1711323

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi á lóðinni við Þrastanes 12.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi fyrir nýtt einbýlishús að Þrastanesi 12 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1504148

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar að samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga að nýju tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis.

Málsnúmer 1801191

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Vinastræti 2-18.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna tilflutnings á allt að 500m2 byggingarheimild neðanjarðar í byggingarheimild ofanjarðar, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Málsnúmer 1801041

06

Svar við fyrirspurn um kennslu í upplýsingatækni í grunnskólum.

Lagt fram.

Málsnúmer 1801215

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar FG um leyfi til að halda dansleik í Mýrinni.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi veðri veitt.

Málsnúmer 1801221

08

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi skýrslu Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins um gegnsæi í opinberum innkaupum, dags. 16.01.18.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1801222

09

Bréf skátafélaganna varðandi lækkun fasteignaskatts, dags. 12.01.18.

Bæjarráð samþykkir að veita skátafélögunum styrk að fjárhæð kr. 3.550.460 til greiðslu fasteignagjalda af húsnæði félaganna við Bæjarbraut.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1801253

10

Bréf Reykjavíkurborgar varðandi tillögu um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, miðborgin, dags. 16.01.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1801265

11

Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi tillögu um breytingu á aðalskipulagi 2013-2025 - Breytt lega Ásvallabrautar og teng. við Kaldárselsveg, dags. 15.01.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1801043

12

Svar við fyrirspurn um íbúðir í eigu Garðabæjar.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1801042

13

Svar við fyrirspurn um kaup frá birgjum á árinu 2017.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1801172

14

Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi skipulagsmál, dags. 11.01.18.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1710169

15

Fjölnota íþróttahús - umsóknir um þátttöku í alútboði.

Eftirfarandi umsóknir bárust um þátttöku í alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379

Eykt ehf., kt. 560192-2319

Ístak hf., kt. 430214-1520

Mannverk ehf., kt. 411112-0200

Munck á Íslandi, kt., 701013-0340