Breyting á ASK Hafnarfjarðar 2013-2025 - Breytt lega Ásvallabrautar og teng. við Kaldárselsveg
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (825). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að gera ekki athugasemd við skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar er varðar breytta legu Ásvallarbrautar og tengingu við Kaldársveg. Bæjarstjórn minnir á að komi til forkynningar tillögunnar samkvæmt 2. mgr. ofangreinds ákvæðis ber að leita umsagnar um tillöguna hjá aðliggjandi sveitarfélögum en mikilvægt er að í tillögunni sé gerð grein fyrir áhrifum umferðarflæðis á svæðinu.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (1821). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að gera ekki athugasemd við lýsinguna samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar er varðar breytta legu Ásvallarbrautar og tengingu við Kaldársveg. Skipulagsnefnd minnir á að komi til forkynningar tillögunnar samkvæmt 2. mgr. ofangreinds ákvæðis ber að leita umsagnar um tillöguna hjá aðliggjandi sveitarfélögum en mikilvægt er að í tillögunni sé gerð grein fyrir áhrifum umferðarflæðis á svæðinu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við lýsinguna en óskar eftir því að tillagan verði kynnt fyrir nefndinni þegar henni verður vísað til forkynningar. Gera þarf grein fyrir áhrifum umferðarflæðis á svæðinu m.t.t. áhrifa á "Ofanbyggðarveg" og stofnbrautakerfi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
3. (1818). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.