6. (1821). fundur
6. (1821). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
13.02.2018
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1707051
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar - lántaka 2018.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku. Alls bárust tilboð upp á 2.100 milljónir að nafnvirði á kröfubilinu 2,45-2,65%. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku allt að fjárhæð kr. 1.850.000.000 verðtryggt með 2,64% vöxtum. Skuldabréf verða útgefin rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands), með stækkun á áður útgefnum skuldabréfaflokki, sem auðkenndur er GARD 16 01, sbr. útgáfulýsingu, dags. 7. apríl 2016.
Málsnúmer 1711108
02
Hvannalundur 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurjóni Inga Garðarssyni, kt. 160770-5469 leyfi til að byggja við núverandi hús að Hvannalaundi 4.
Málsnúmer 1801044
03
Lyngás 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til breytinga á innra skipulagi o.fl. við núverandi húsnæði í eigu Garðabæjar að Lyngási 9.
Málsnúmer 1707058
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðanna við Hraunprýði 6-12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Garðahrauns í tilefni umsóknar um að um að breyta opnum bílskýlum í lokaðar bílgeymslur á lóðum við Hraunprýði 6-12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1711185
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Hegranesi 28.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Hegranes 28 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið.
Málsnúmer 1302243
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi ábendingar og athugasemdir Skipulagsstofnunar við tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lagfæringu á gögnum og umsögn vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við samþykkt bæjarstjórnar frá fundi 5. október 2017 á tillögu um aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, sbr. bréf stofnunarinnar, dags. 5. janúar 2018. Samþykkt tillaga með breytingum skal send að nýju til meðferðar Skipulagsstofnunar samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1709351
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram koma helstu áherslur og stefna við deiliskipulagsgerðina og fyrirhugað skipulagsferli. Skipulagslýsingin skal send til umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila ásamt því að kynna hana almenningi.
Málsnúmer 1801253
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 - miðborgin.
Lögð fram.
Málsnúmer 1801265
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 - Breytt lega Ásvallabrautar og teng. við Kaldárselsveg
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að gera ekki athugasemd við lýsinguna samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar er varðar breytta legu Ásvallarbrautar og tengingu við Kaldársveg. Skipulagsnefnd minnir á að komi til forkynningar tillögunnar samkvæmt 2. mgr. ofangreinds ákvæðis ber að leita umsagnar um tillöguna hjá aðliggjandi sveitarfélögum en mikilvægt er að í tillögunni sé gerð grein fyrir áhrifum umferðarflæðis á svæðinu.
Málsnúmer 1801359
10
Bréf Strætó bs. varðandi heimild til lántöku vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum við Brú lífeyrissjóð, dags 26.01.18.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að breyta samþykkt um heimild til lánveitingar Strætó bs. þannig að fram komi að lánstími verði allt að 38 ár.
Málsnúmer 1802050
11
Bréf Alþingis um tillögu til þingsályktunar um skilyrðislausa grunnframfærslu (borgaralaun), 9. mál., dags. 02.02.18.
Málsnúmer 1802056
12
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis um PISA könnun 2018, dags. 02.02.18.
Lagt fram bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis þar sem skólayfirvöld eru hvött til að undirbúa nemendur með jákvæðu hugafari til að takast á við PISA könnun sem lögð verður fyrir í mars. Jafnframt er boðað að Menntamálastofnun muni útbúa sérstakt kynningarefni í tengslum við málið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802042
13
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um niðurstöður samræmdra prófa, dags. 02.02.18.
Lagt fram yfirlit yfir samræmd próf haustið 2017 ásamt skýrslu Garðaskóla um samræmd próf.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs benti á að upplýsingar um samræmd próf eru aðgengilegar á vef Menntamálastofnunar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801433
14
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi frárennslismál í Vetrarmýri, dags. 29.01.18.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir að við hönnun mannvirkja á svæðinu verður tekið tillit til aðstæðna á varðandi stöðu grunnvatns og frárennslismála.
Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802089
15
Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 07.02.18.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 7.574.664 til greiðslu fasteignagjalda fyrir árið 2018.