Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
14. (1829). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðanna við Hraunprýði 6-12, þar sem heimilað verður að breyta bílskýlum í lokaða bílgeymslu. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Grenndarkynningu lýkur 21. mars
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðanna Hraunprýði 6,8,10 og 12 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að unnt verður að breyta bílskýli í lokaða bílageymslu. . Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
3. (825). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Garðahrauns í tilefni umsóknar um að um að breyta opnum bílskýlum í lokaðar bílgeymslur á lóðum við Hraunprýði 6-12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
6. (1821). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Garðahrauns í tilefni umsóknar um að um að breyta opnum bílskýlum í lokaðar bílgeymslur á lóðum við Hraunprýði 6-12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðanna Hraunprýði 6,8,10 og 12. Tillagan gerir ráð fyrir því að unnt verður að breyta bílskýli í lokaða bílageymslu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal öllum íbúum í Hraunprýði.