Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag miðsvæðis Álftaness.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
44. (1905). fundur
Gögn vegna Álftaness
https://wetransfer.com/downloads/3b68944acb2b7653f2b6ec70102a604c20191114163402/31a086e1d50fc8bdebef6810dbc3466b20191114163402/d3bbfd
Lögð fram.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
16. fundur
Lagðar fram tillögur að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi sem er alls 5 talsins: Breiðamýri, Krókur, Helguvík, Kumlamýri og Skógtjörn. Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. ágúst sl.
Tillögur að deiliskipulagsáætlunum fyrir Breiðumýri, Krók, Helguvík og Kumlamýri hafa verið lagfærðar í samræmi við erindi Skipulagsstofnunar og í kjölfar funda með fulltrúum stofnunarinnar. Lagt er til að tillaga að deiliskipulagi Skógtjarnar verði endurskoðuð og auglýst að nýju.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. (846). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirtaldar tillögur skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir Breiðumýri, Krók, Helguvík, Skógtjörn og Kumlamýri innan miðsvæðis Álftaness, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. dagskrárliði nr. 5 - 9. Tillögurnar hafa verið auglýstar og frestur til að gera athugasemdir var frá 27. desember 2018 til 7. febrúar 2019. Fjölmargar athugasemdir bárust í athugasemdarfresti. Þær hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir svör við þeim. Tekið hefur verið tillit til athugasemda og liggja fyrir tillögur um breytingar sem fram koma undir einstaka tillögum. Þær teljast ekki breyta upphaflegum tillögum í grundvallaratriðum og þarf því ekki að auglýsa tillögurnar að nýju, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Lögð er fram fornleifaskráning og húsakönnun. Með gildistöku tillagna að nýju deiliskipulagi falla úr gildi núgildandi deiliskipulög svæðanna.
Samþykktar tillögur skulu sendar Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
13. (1874). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. dagskrárliði nr. 5 - 9. Tillögurnar hafa verið auglýstar og frestur til að gera athugasemdir var frá 27. desember 2018 til 7. febrúar 2019. Fjölmargar athugasemdir bárust í athugasemdarfresti. Þær hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir svör við þeim. Tekið hefur verið tillit til athugasemda og liggja fyrir tillögur um breytingar sem fram koma undir einstaka tillögum. Þær teljast ekki breyta upphaflegum tillögum grundvallaratriðum og þarf því ekki að koma til að auglýsa tillögurnar að nýju, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga
Lögð eru fram drög að fornleifaskráningu húsakönnun. Með gildistöku tillagna að nýju deiliskipulagi falla úr gildi núgildandi deiliskipulög svæðanna.
Samþykktar tillögur skulu sendar Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
4. fundur
Lagðar fram tillögur að deiliskipulagsáætlunum á miðsvæði Álftaness. Tillögurnar eru 5 talsins og skiptast í Breiðumýri, Krók, Helguvík, Skógtörn og Kumlamýri.
Auglýsing tillagnanna fór fram frá 27.desember 2018 til 7.febrúar 2019.
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir sem borist hafa.
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á tillögunum og er þeim ætlað að koma til móts við athugasemdir. Umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögum.
-Íbúðum fækki í Breiðumýri um 18 eða sem nemur 2 íbúðum á hvern húskjarna(úr 270 í 252)
-Íbúðum (raðhúsum) fækki í Króki um 3 (Svanamýri 9 og Gásamýri 23 og 25)
(Gildandi deiliskipulag sem staðfest var árið 2007 gerir ráð fyrir allt að 307 íbúðum á landnotkunarreit 1.23 í aðalskipulagi . Eftir breytingu á auglýstri tillögu sem lögð er til þá fækkar íbúðum um 19 og verða þá 264 íbúður innan landnotkunarreitsins.)
- Gásamýri 31, 29 og 27 verði hliðrað til suðurs
-Sett verði ákvæði um að hús í Breiðumýri næst Suðurnesvegi, Norðurnesvegi og Skólatúni verði ekki hærri en 2 hæðir. Þau hús geta hvort heldur verið útfærð sem raðhús eða fjölbýlishúsaíbúðir.
-Sett verði ákvæði um að hús í norðvesturhorni Hestamýrar nr.3 verði ekki hærri en 1 hæð innan þess reits sem deiliskipulagsráðgjafi lagði til á fundinum.
-Sérnotafletir íbúða á jarðhæð verði stækkaðir eins og deiliskipulagsráðgjafi leggur til.
-Skjólveggir á sérnotareitum verði útfærðir eins og deiliskipulagsráðgjafi leggur til.
-Hámarkshæð húsa í Lambamýri lækki um 1m (úr 12m í 11m) og í Grásteinsmýri og Hestamýri um 1,5 m (úr 12 m í 10,5 m).
-Hámarkshæð parhúsa í Kumlamýri lækki um 1,0 m (verði 7,5 m)
(Í auglýstri tillögu varð misræmi á milli uppdráttar og greinargerðar hvað varðar hámarkshæð einbýlishúsa í Helguvík. Rétt er hæð 7,5 eins og hún kom fram í greinargerð)
-Göngustígur í gegnum Kumlamýri færist suður fyrir byggðina.
-Heiti Holtsbrekku verði breytt í Dalsbrekka
-Tenging Dalsbrekku verði í beinu framhaldi af Tjarnarbrekku.
Skipulasstjóri leggur til efirfarandi breytingu á kynntri tillögu í kjölfar skoðunar:
-Byggingarreitir í Breiðumýri breikki úr 10 m í 12,5 m
Lögð fram drög að fornleifaskráningu sem Ragnheiður Traustadóttir er að vinna að. Niðurstöður gefa ekki tilefni til breytinga á deiliskipulagstillögunni. Skipulagsstjóri greinir frá því að bráðabirgðaniðurstaða húsakönnunar sem Gláma-Kím vinnur að gefur ekki tilefni til breytinga á tillögunum.
Skipulagsnefnd telur að með ofangreindum breytingum sé tillögunum ekki breytt í grundvallaratriðum og því ekki ástæða til þess að endurauglýsa tillöguna sbr.4.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsátætlana þessara falla úr gildi þær deiliskipulagsáætlanir sem í gildi eru innan skipulagssvæðanna.
Skipulagsnefnd samþykkir deilskipulagstillögurnar Breiðumýri, Krók, Helguvík, Skógtjörn og Kumlamýri með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
3. fundur
Lagðar fram tillögur og athugasemdir að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi. Tillögurnar eru 5 talsins og skiptast í Breiðumýri, Krók, Helguvík, Skógtjörn og Kumlamýri. Deiliskipulagshöfundar Þórhallur Sigurðsson arkitekt og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt lögðu fram greinargerð þar sem innihald athugasemda hefur verið flokkað niður. Umræður um innihald athugasemda og hugsanleg viðbrögð. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarráð Garðabæjar
07
7. (1868). fundur
Lagðar fram athugasemdir sem bárust í athugasemdarfresti vegna auglýsingar á tillögum að nýju deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness. Alls er um að ræða 24 athugasemdir sem á milli 400 - 500 manns hafa undirritað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
2. fundur
Lagðar fram tillögur að deiliskipulagi 5 svæða sem teljast til miðsvæðis á Álftanesi að lokinni auglýsingu en fresti til að skila inn athugasemdum lauk 7.febrúar. Svæðin eru: Breiðamýri, Krókur, Helguvík,Kumlamýri og Skógtjörn(fundarliðir 2-6).
Lagðar fram þær athugasemdir sem borist hafa. Erindin eru 24 talsins og hefur vel á fimmta hundrað manns undirritað erindin.
Athugasemdir eru gerðar við allar tillögurnar.
Ennfremur lagðar fram umsagnir frá Heilbrigðiseftirliti og HS-Veitum.
Athugasemdum og umsögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði. Öllum athugasemdum verður svarað formlega á síðari stigum málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
15. fundur
Lögð fram deiliskipulagsgögn vegna tillagna að deiliskipulagi Miðsvæðis Álftaness sem vísað hefur verið til auglýsingar. Hafa þau verið lagfærð lítilega og skipulagsnefnd gerir ekki athugsemd við þær lagfæringar. Hluti deiliskipulagsgagna eru umhverfisskýrsla deiliskipulagstillagna og skýrsla um veitur, vatnafar og meðhöndlun ofanvatns sem Verkís hefur unnið. Einnig umferðargreining sem unnin er af Viaplan. Öll þessi gögn munu fylgja í auglýsingu deiliskipulagstillagnanna sem eru 5 talsins, Breiðamýri, Krókur, Helguvík,Kumlamýri og Skógtjörn.
Bæjarstjórn Garðabæjar
10
17. (839). fundur
Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um rammaskipulag fyrir miðsvæði Álftaness þar sem verða fimm deiliskipulagsáfangar, sbr. tölulið 6 - 9 í fundargerð.
Bæjarráð Garðabæjar
11
44. (1859). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um rammaskipulag fyrir miðsvæði Álftanes þar sem verða fimm deiliskipulagsáfangar, sbr. tölulið 6 - 9 í fundargerð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
14. fundur
Þórhallur Sigurrðsson kynnti tillögur að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi sem hefur verið skift upp í 5 deiliskipulagsáætlanir: 1.Breiðamýri, 2 Krókur, 3 Helguvík, 4 Skógtjörn og 6 Kumlamýri. Þær áætlanir gera ráð fyrir allt að 374 íbúðareiningum í fjölbýli, raðhúsum, parhúsum og einbýlishúsum.
Skipulagsnefnd samþykkir heildarskipulagið sem rammaskipulag svæðisins alls. Að öðru leyti vísast til ofangreindra skipulagsáætlana.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
12. fundur
Þórhallur Sigðurðsson hja AS-arktiektum kynnti tillögu að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi. Deiliskipulagið skiptist í 5 deiliskipulagsáætlanir; Breiðamýri, Krókur, Helguvík, Kumlamýri og Skógtjörn. Fram kom að breytingar hafa verið gerðar á tillögunni í kjölfar ábendinga sem bárust frá almenningi í forkynnngu.
Lilja G.Karlsdóttir samgönguverkfræðingur gerði grein fyrir greiningu tillögunnar með tilliti til umferðar-og öryggis.
Tillögunni vísað til frekari skoðunar hjá Tækni-og umhverfissviði.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
14
1. fundur
Sorp - djúpgámar
Við vinnslu deiliskipulags Álftanes er gert ráð fyrir djúpgámum. Umhverfisnefnd mælir með að sú lausn verði skoðuð nánar og að það sé gert ráð fyrir því í skipulaginu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
9. fundur
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa í forkynningu ásamt úttekt á innihaldi þeirra.
Þórhallur Sigurðsson skipulagsráðgjafi hjá Andersen&Sigurdsson kynnti nokkrar hugleiðingar um útfærslu tillögunnar sem eru innblásnar af þeim hugmyndum sem fram koma í ábendingum almennings.
Tillögunni ásamt ábendingum og hugleiðingum vísað til umsagnar umhverfisnefndar. Sérstaklega er óskað eftir afstöðu nefndarinnar til sorphirðumála.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
8. fundur
Lögð fram að tillaga að deiliskipulagi miðsvæðis á Álftanesi sem vísað var til forkynningar sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Frestur til að skila inn ábendingum rennur út í dag, 11.maí. Haldinn var kynningarfundur á meðan á forkynningu stóð í hátíðarsal íþróttamiðstöðvarinnar þann 26.apríl og var hann mjög vel sóttur. Fundargerð kynningarfundar lögð fram. Þær ábendingar sem nú þegar hafa borist lagðar fram.
Fundargerð og þeim ábendingum sem berast vísað til tækni- og umhverfissviðs og skipulagshönnuða til úrvinnslu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
17
7. (829). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Bæjarráð Garðabæjar
18
14. (1829). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
19
6. fundur
Þórhallur Sigurðsson arkitekt hjá Andersen & Sigurdsson arkitektum kynnti tillögu að deiliskipulagi Miðsvæðis Álftaness (Suðurnes). Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar samkvæmt 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal kynningargfund þann 26.apríl í Álftanesskóla.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
20
5. fundur
Þórhallur Sigurðsson kynnti tillögu að deiliskipulagi Miðsvæðis á Álftanesi.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
21
3. (825). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna nýs deiliskipulags fyrir miðsvæði Álftaness þar sem fram koma helstu áherslur og stefna við deiliskipulagsgerðina og fyrirhugað skipulagsferli. Skipulagslýsingin skal send til umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila ásamt því að kynna hana almenningi.
Bæjarráð Garðabæjar
22
6. (1821). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram koma helstu áherslur og stefna við deiliskipulagsgerðina og fyrirhugað skipulagsferli. Skipulagslýsingin skal send til umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila ásamt því að kynna hana almenningi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
23
3. fundur
Þórhallur Sigurðsson arkitekt hjá Arkitektastofunni Andersen & Sigurdsson í Friðriksbergi kynnti tillögur að deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá deiliskipulagshöfundi og tækni-og umhverfissviði.
Lögð fram verkefnislýsing að deiliskipulaggerð miðsvæðis á Álftanesi. Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
24
15. fundur
Lögð fram tilllaga að verkefnislýsingu deiliskipulags miðsvæðis á Álftanesi. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
25
11. fundur
Þórhallur Sigurðsson arkitekt hjá Andersen & Sigurðsson Arkitekter í Friðriksbergi og Steinar Sigurðsson arkitekt hjá Teikn arkitektaþjónustu komu á fund nefndarinnar. Þeir hafa tekið að sér að vinna tillögu að deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness á grundvelli vinningstillögu þeirra í samkeppni þeirri sem fór fram fyrr á þessu ári.
Skipulagsstjóri og deiliskipulagráðgjafar gerir grein fyrir fyrstu skrefum deiliskipulagsvinnunnar.
Skipulagsnefnd leggur til að allt svæðið sem deiliskipulagssamkeppnin nær til verði deiliskipulagt samhliða en skynsamlegt getur verið að skipta því upp í nokkur deiliskipulagssvæði.
Skipulagsnefnd vísar verkefninu til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði. Fyrsta skrefið verður að vinna verkefnislýsingu sem lögð verður fram í skipulagsnefnd.