Beint í efni

Keldugata 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1711103

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (825). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

5. (1820). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lísbet Bergsveinsdóttur, kt. 071141-2769 leyfi til að byggja einbýlishús að Keldugötu 15.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

2. (824). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum varðandi þakhalla við byggingu einbýlishússins að Keldugötu 15 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

04

3. (1818). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum varðandi þakhalla við bygging einbýlishússins að Keldugata 15 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram ósk um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir breyttum þakhalla á anddyri. Skipulag segir 10-45°. Óskað er eftir að fara með halla á hluta af þaki í 0°. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við samþykkt byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. þar sem að um óverulegt frávik er að ræða sbr. 3.mgr.sömu greinar. Tillagan uppfyllir að öllu leyti kröfur deiliskipulagsins um vandaða hönnun og uppbrot ytra byrðis. Baldur Ó. Svavarsson vek af fundi undir þessum lið.