Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi eiganda Grænagarðs á Garðaholti.

Málsnúmer 1905084

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (1879). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

8. fundur

Lögð fram fyrirspurn Hólmfríðar Sigurðardóttur þess efnis hvort heimilað yrði að fjarlægja núverandi íbúðarhús sem stendur innan Grænagarðs á Garðaholti og reisa í stað þessi nokkuð stærra hús og 40 m2 útihús að auki. Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart hugmyndinni en leggur til að lögð verði fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir íbúðarhús og útihús og yrði íbúðarhúsið með svipuðu sniði og það hús sem fyrir er og útihús í líkingu við þau útihús sem deiliskipulag heimilar fyrir nýbyggingar í Garðahverfi.