Beint í efni

Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi tillögu að vali á bæjarlistamanni Garðabæjar 2019.

Málsnúmer 1904166

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (1879). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2019. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð miðvikudaginn 22. maí nk. kl. 17:30 í Sveinatungu.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Áframhald umræðu frá síðasta fundi.

Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2019. Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð Garðabæjar 22. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Ábendingar lagðar fram og ræddar.

Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2019 í mars og apríl. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur. Umræðu verður haldið áfram á næsta fundi.