Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn lóðarhafa við Hrauntungu við Álftanesveg um nýbyggingu fyrir starfsemi ferðaþjónustu.

Málsnúmer 1805222

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

34. (1849). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Lagt fram erindi lóðarhafa að Hrauntungu við Garðahraunsveg (gamla Álftanesveginn) þar sem leitað er álits Garðabæjar á þeirri tillögu að núverandi hús verði fjarlægt og í stað þess byggt 1000 m2 hús sem verði nýtt til útleigu fyrir ferðamenn.

Skipulagsnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við áform húseiganda um niðurrif hússins en telur rétt að varðveislugildi hússins verði metið áður en til þess kemur.

Við hönnun nýbyggingar ber að gæta þess að byggingin sé í samræmi við ákvæði skilmála deiliskipulags Garðahrauns þar sem lögð er áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og að byggingar falli vel að umhverfi sínu.

Varðandi stærð á fyrirhugaðri byggingu þarf að huga ákvæðum í skipulagsskilmálum um nýtingarhlutfall en á mæliblöðum koma m.a. fram upplýsingar um stærðir lóða, lóðarmörk og byggingarreiti húsa.

Skipulagsnefnd bendir á að í deiliskipulagskilmálum er skipulagsvæðið skilgreint sem íbúðarhúsabyggð. Öll atvinnustarfsemi og -rekstur, sem leiðir af sér umferðaraukningu um húsagötur eða ónæði er óheimil, nema með samþykki bæjarstjórnar.

Baldur Svavarsson situr hjá við samþykkt bókunar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

18. (1833). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl