Tillaga um stofnun Sköpunarmiðstöðvar (Menningarhús)
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
6. fundur
Áframhaldandi umræða.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi.
Upplýsingastjóri greindi frá viðræðum við formann myndlistarfélagsins Grósku um starfsemi félagsins og hvernig félagið gæti höfðað til ungs fólks. Gróska hefur átt í samstarfi við Skapandi sumarstarf á undanförnum árum í tengslum við undirbúning hinnar árlegu Jónsmessugleði. Áhugi er fyrir því að fá ungt fólk til að taka þátt í starfi félagsins og skoða þarf hvaða leiðir eru færar til þess.
Einnig var greint frá starfsemi Klifsins og viðræðum við stjórnarformann og stofnanda þess. Klifið hefur m.a. sinnt fjölbreyttu námskeiðahaldi á sviði sköpunar og menningar fyrir börn og fullorðna yfir vetrartímann en einnig boðið upp á sumarnámskeið. Einnig hefur Klifið komið að ýmsum öðrum verkefnum í samstarfi við bæinn samkvæmt samstarfssamningi.
Umræður voru um starfsemi félaganna í tengslum við hugmyndir um starfsemi sem gæti rúmast innan sköpunarmiðstöðvar/menningarhúss. Upplýsingar um þetta verða teknar saman og sendar til nefndarmanna.
Formaður greindi frá áformum um að setja af stað næsta vor áframhaldandi vinnu varðandi fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ. Þar mun umræða um sprotastarfsemi á sviði menningar og nýsköpunar til framtíðar halda áfram.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi. Greint var frá ýmiss konar starfsemi annars staðar sem að einhverju leyti falla undir hugmyndir um sköpunarmiðstöð.
Umræður voru um málið.
Upplýsingastjóra var falið að taka saman upplýsingar um starfsemi Klifsins, Grósku og fleiri félaga í Garðabæ og þá sérstaklega með tilliti til starfs fyrir ungt fólk á sviði sköpunar. Einnig verður aflað upplýsinga um stöðu samstarfs Garðabæjar við Hafnarfjörð og Nýsköpunarmiðstöð um rekstur frumkvöðlasetursins Kveikjunnar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun Sköpunarmiðstöðvar var lögð fram á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 20. september sl. Tillögunni var vísað til bæjarráðs sem vísaði tillögunni til kynningar í menningar- og safnanefnd og til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2019.
Umræður voru um tillöguna og upplýsingastjóra falið að afla upplýsingar um sambærilega starfsemi annars staðar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir lagði fram bókun f.h. Garðabæjarlistans:
Garðabæjarlistinn fagnar því að vel sé tekið í tillögur um sköpunarmiðstöð. Garðabæjarlistinn leggur áherslu á að í miðstöðinni verði fyrst og fremst aðstaða til list- og nýsköpunar fyrir ungt fólk. Til dæmis geti miðstöðin hýst lítil sprotafyrirtæki og veitt ungum listamönnum í bænum vinnuaðstöðu. Þannig verði stuðlað að því að efla samfélag skapandi ungs fólks í bænum og þeim gert kleift að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Garðabæjarlistinn vill að sköpunarmiðstöðinni verði komið á fót sem allra fyrst og þ.a.l. verði hún sett á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2019.
Formaður áréttaði að í Vegvísi, greinargerð starfshóps um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ, dags. í apríl 2018, sem lögð var fram í bæjarráði Garðabæjar 8. maí 2018, er lögð áhersla á að með slíkri fjölnota miðstöð sé lagður grundvöllur að menningar- og fræðaklasa í Garðabæ sem verði vegleg umgjörð utan um starfsemi frumkvöðla, nýsköpun og alls kyns menningarstarfsemi í bænum.
Brýnt sé að næsta skref í þessari undirbúningsvinnu verði stigið á árinu 2019 með frekari stefnumótun, nánari þarfagreiningu, gerð húslýsingar og kostnaðaráætlunar fyrir fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
34. (1849). fundur
Bæjarráð vísa tillögunni til kynningar í menningar- og safnanefnd og til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2019.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
12. (834). fundur
Valborg Ösp Árnadóttir Warén, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur til að komið verði á fót Sköpunarmiðstöð eða Menningarhúsi. Garðabæjarlistinn gerir það að tillögu sinni að nú við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir fjármagni svo að hægt verði að hefja undirbúning fyrir byggingu húsnæðis undir starfsemina og á meðan verði fundin viðunandi aðstaða hið fyrsta.
Garðabær á að vera lifandi bær þar sem hugvit fær að blómstra og því er nauðsynlegt að viðunandi aðstaða sé í bænum þar sem ungt fólk sem og aðrir geti nýtt sér til að sinna ný ? og listsköpun.
Garðabæjarlistinn leggur til að Íþrótta-og tómstundaráð, ásamt menningarnefnd móti hugmyndir að sköpunarmiðstöðinni og njóti til þess fulltingis Ungmennaráðs Garðabæjar.“
Greinagerð.
Fjölbreyttir valkostir í tómstundastarfi ýta undir vellíðan. Til þess að sem flestir finni áhugamál við sitt hæfi er nauðsynlegt að koma á fót miðstöð eða aðstöðu fyrir list og nýsköpun hér í bæjarfélaginu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi skýrslu starfshóps um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ sem bæjarráð skipaði 27. febrúar 2018, en starfshópurinn skilaði þann 27. apríl 2018 ítarlegri greinargerð með frumþarfagreiningu menningar- og fræðamiðstöðvar, valkostum um staðsetningu o.fl. og var skýrslan lögð fram í bæjarráði í kjölfarið þann 8. maí sl.
Gunnar Valur lagði til að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarráðs.