Beint í efni

4. fundur

19.10.2018
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

4. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

19.10.2018

Kl. 08:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1806461

01

Fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022)

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri kynnir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar mætti á fund nefndarinnar og fór yfir ferli við vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019. Farið var yfir þróun fjárframlaga til menningarmála síðustu ár. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð í bæjarstjórn Garðabæjar 1. nóvember nk.

Málsnúmer 1808275

02

Persónuverndarmál

Telma Halldórsdóttir persónuverndarfulltrúi Garðabæjar segir frá vinnu vegna nýrra persónuverndarlaga sem tóku gildi í sumar.

Telma Halldórsdóttir persónuverndarfulltrúi Garðabæjar mætti á fund nefndarinnar og fór yfir helstu þætti sem þarf að hafa í huga við innleiðingu á nýjum persónuverndarlögum sem tóku gildi í sumar. Stefnt er að því að almennir nefndarmenn fái vinnunetföng hjá Garðabæ.

Umræður voru um málið og með hvaða hætti ný persónuverndarlög tengjast starfi menningar- og safnanefndar og nefndarmanna.


Málsnúmer 1809281

03

Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga

Málsnúmer 1809235

04

Tónlistarveisla í skammdeginu 2018

Farið yfir undirbúning vegna tónlistarveislu í skammdeginu 8. nóvember nk.

Tónlistarveisla í skammdeginu verður haldin fimmtudagskvöldið 8. nóvember nk. Að þessu sinni verður það hljómsveitin Valdimar sem stígur á svið á Garðatorgi í göngugötunni innandyra. Myndlistarfélagið Gróska tekur þátt eins og fyrri ár og einnig verða fyrirtæki á torginu upplýst um viðburðinn og hvött til að taka þátt, t.d. með lengri afgreiðslutíma. Farið var yfir áætlaðan kostnað og greint frá hvernig kynningu á viðburðinum hefur verið háttað undanfarin ár.

Málsnúmer 1808275

05

Verkefni mennningar- og safnanefndar 2018-2019

Greint frá hugmynd að tónleikum með bæjarlistamanni Garðabæjar fimmtudaginn 1. nóvember nk.

Haustvaka Kvennakórs Garðabæjar 25. október nk. kynnt.

Drög að dagskrá Þriðjudagsklassíkur 2019 kynnt.

Greint var frá hugmynd að tónleikum með Maríu Magnúsdóttur núverandi bæjarlistamanni Garðabæjar fimmtudaginn 1. nóvember nk. í Vídalínskirkju. Menningar- og safnanefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur upplýsingastjóra að vinna málið áfram.

Haustvaka Kvennakórs Garðabæjar verður haldin fimmtudagskvöldið 25. október nk. í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Haustvaka Kvennakórsins er dagskrá í tali og tónum þar sem fram koma gestir auk kvennakórsins.

Drög að dagskrá Þriðjudagsklassíkur 2019 kynnt. Stefnt er að þrennum tónleikum frá janúar fram í mars í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Að þessu sinni verður dagskráin í samvinnu við KÍTON, félags kvenna í tónlist en Ingibjörg Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi hátíðarinnar eins og undanfarin ár. Framlögð dagskrá samþykkt.

Málsnúmer 1810228

06

Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju í desember

Bréf Ármanns Helgasonar, f.h. Camerarctica um styrk vegna tónleika 21.desember í Garðakirkju tekið fyrir.

Bréf kammerhópsins Camerarctica, dags. 1. október 2018, um styrk vegna árlegra tónleika undir yfirskriftinni ,,Mozart við kertaljós“ í Garðakirkju, 21. desember nk, var tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita kammerhópnum Camerarctica styrk að upphæð 260 þúsund kr til tónleikahaldsins. Lögð er áhersla á að viðburðurinn verði kynntur bæjarbúum með auglýsingu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1710153

07

Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands

Í tilefni af 100 ára afmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands ætlar Bókasafn Garðabæjar að bjóða upp á erindi frá Steinari J. Lúðvíkssyni sem ritaði Sögu Garðabæjar 30. október kl. 18. Fjallað verður um hvernig Garðabær var árið 1918.

Áframhaldandi umræður um að menningar- og safnanefnd standi fyrir ljósmyndasamkeppni þar sem þátttakendur senda inn myndir úr daglegu lífi í Garðabæ á 100 ára afmæli fullveldisins. Rætt var um hvort halda ætti sýningu með innsendum myndum frá bæjarbúum í staðinn fyrir samkeppni og skoða hvort hægt væri að setja upp sýninguna í Bókasafni Garðabæjar í kringum 18. desember um svipað leyti og haldið er upp á 50 ára afmæli safnsins.

Málsnúmer 1809228

08

Tillaga um stofnun Sköpunarmiðstöðvar (Menningarhús)

Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun Sköpunarmiðstöðvar var lögð fram á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 20. september sl. Tillögunni var vísað til bæjarráðs sem vísaði tillögunni til kynningar í menningar- og safnanefnd og til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2019.

Umræður voru um tillöguna og upplýsingastjóra falið að afla upplýsingar um sambærilega starfsemi annars staðar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir lagði fram bókun f.h. Garðabæjarlistans:

Garðabæjarlistinn fagnar því að vel sé tekið í tillögur um sköpunarmiðstöð. Garðabæjarlistinn leggur áherslu á að í miðstöðinni verði fyrst og fremst aðstaða til list- og nýsköpunar fyrir ungt fólk. Til dæmis geti miðstöðin hýst lítil sprotafyrirtæki og veitt ungum listamönnum í bænum vinnuaðstöðu. Þannig verði stuðlað að því að efla samfélag skapandi ungs fólks í bænum og þeim gert kleift að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Garðabæjarlistinn vill að sköpunarmiðstöðinni verði komið á fót sem allra fyrst og þ.a.l. verði hún sett á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2019.

Formaður áréttaði að í Vegvísi, greinargerð starfshóps um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ, dags. í apríl 2018, sem lögð var fram í bæjarráði Garðabæjar 8. maí 2018, er lögð áhersla á að með slíkri fjölnota miðstöð sé lagður grundvöllur að menningar- og fræðaklasa í Garðabæ sem verði vegleg umgjörð utan um starfsemi frumkvöðla, nýsköpun og alls kyns menningarstarfsemi í bænum.

Brýnt sé að næsta skref í þessari undirbúningsvinnu verði stigið á árinu 2019 með frekari stefnumótun, nánari þarfagreiningu, gerð húslýsingar og kostnaðaráætlunar fyrir fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.

Fylgiskjöl