Tilkynning um skýrslu afmælisnefndar sjálfstæðis og fullveldis Íslands, dags. 09.04.19.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15. (1876). fundur
Lögð fram.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Farið yfir hvernig tókst til með ljósmyndasýningu á Bókasafni Garðabæjar í desember.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar og Bókasafn Garðabæjar stóðu fyrir ljósmyndasýningu undir yfirskriftinni ,,Hvernig lítur Garðabær út árið 2018?" í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Sýningin opnaði 18. desember sl. um leið og haldið var upp á 50 ár afmæli Bókasafns Garðabæjar.
Leitað var til bæjarbúa og annarra velunnara Garðabæjar um að senda inn ljósmyndir úr Garðabæ sem voru teknar á árinu 2018. Alls bárust um 140 myndir sem voru sýndar á skjá auk þess sem athyglisverðustu myndirnar sem fengu viðurkenningar voru prentaðar út og sýndar í safninu. Alls fengu sex ljósmyndarar viðurkenningu í flokki fullorðinna og þrír ljósmyndarar yngri en 18 ára fengu hvatningarverðlaun.
Hönnunarsafn Íslands stendur um þessar mundir fyrir áhugaverðri sýningu á Instagram síðu safnsins sem nefnist 100 ár - 100 hlutir í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Farið yfir undirbúning vegna ljósmyndasýningar menningar- og safnanefndar og Bókasafns Garðabæjar í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands.
Farið var yfir undirbúning vegna ljósmyndasýningar sem menningar- og safnanefnd og Bókasafn Garðabæjar standa að í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Auglýst hefur verið eftir ljósmyndum bæjarbúa og annarra í Garðapóstinum, á vef Garðabæjar og bókasafnsins og fésbókarsíðum. Stefnt er að því að opna sýningu á myndum á 50 ára afmæli Bókasafns Garðabæjar 18. desember nk. Ef fjöldi innsendra mynda verður ekki nægjanlegur var rætt um möguleika á því að framlengja innsendingarfrest og hafa sýningu á Safnanótt í byrjun febrúar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Áframhaldandi umræða og afgreiðsla um ljósmyndasýningu/samkeppni í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar í tilefni af aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar situr fundinn undir þessum lið og næsta lið á eftir.
Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, var gestur fundarins undir þessum lið og 2.tl.fundarins.
Áframhaldandi umræður frá síðasta fundi um að ljósmyndasýningu/samkeppni í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar í tilefni af aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Farið var yfir með hvaða hætti verður auglýst eftir ljósmyndum og hvernig staðið verði að veitingu viðurkenninga fyrir ljósmyndir. Innsendar myndir skulu sendar inn í síðasta lagi 1. desember 2018, á 100 ára afmæli fullveldisins. Reiknað er með að ljósmyndasýningin verði að mestu á skjám en einnig er gert ráð fyrir að prenta út ákveðinn fjölda mynda og hafa til sýnis.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
4. fundur
Í tilefni af 100 ára afmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands ætlar Bókasafn Garðabæjar að bjóða upp á erindi frá Steinari J. Lúðvíkssyni sem ritaði Sögu Garðabæjar 30. október kl. 18. Fjallað verður um hvernig Garðabær var árið 1918.
Áframhaldandi umræður um að menningar- og safnanefnd standi fyrir ljósmyndasamkeppni þar sem þátttakendur senda inn myndir úr daglegu lífi í Garðabæ á 100 ára afmæli fullveldisins. Rætt var um hvort halda ætti sýningu með innsendum myndum frá bæjarbúum í staðinn fyrir samkeppni og skoða hvort hægt væri að setja upp sýninguna í Bókasafni Garðabæjar í kringum 18. desember um svipað leyti og haldið er upp á 50 ára afmæli safnsins.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Bréf afmælisnefndar um viðburði í tengslum við aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands kynnt.
Bréf afmælisnefndar vegna þátttöku sveitarstjórna í verkefninu ,,Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands" var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 29. maí sl. og vísað til umfjöllunar m.a. í menningar- og safnanefnd.
Lagt fram og rætt. Bókasafn Garðabæjar og grunnskólar bæjarins hafa verið með ýmsa viðburði í undirbúningi vegna aldarafmælis fullveldisins, t.d. í tengslum við Dag íslenskrar tungu 16. nóvember nk.
Rætt var um möguleika á því að menningar- og safnanefnd standi fyrir ljósmyndasamkeppni þar sem þátttakendur myndu senda inn myndir úr daglegu lífi í Garðabæ nú á 100 ára afmæli fullveldisins.
Vísað til áframhaldandi umræðu á næsta fundi.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
08
1. fundur
Tilmæli um að minnast fullveldis Íslands í tengslum við viðburði á vegum íþrótta- og tómstundaráðs á árinu kynnt nefndarmönnum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
09
1. fundur
Leikskólanefnd tekur undir tilmæli um að minnast fullveldis Íslands og mun kynna verkefnið fyrir stjórnendum leikskóla.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
10
20. (1835). fundur
Bæjarráð tekur undir tilmæli að minnast fullveldis Íslands í tengslum við viðburði á vegum bæjarfélagsins á árinu 2018.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í skólanefnd, leikskólanefnd, ungmennaráði, menningar- og safnanefnd og iþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
11
40. (1806). fundur
Bæjarstjóri kynnti hugmynd að verkefni í samráði við Vegagerðina um hönnun hringtorgs við Bessastaði með tengingu við fund við Stjórnarráð Íslands 1. desember 1918 þegar fullveldi landsins var fagnað.