1. fundur
1. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
29.08.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Kristín Sigurðardóttir - verkefnastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hilmar Þór Sigurjónsson - fulltrúi kennara
Ritari
- Kristín Sigurðardóttir
Við upphaf fundar bar formaður upp breytingatillögu á dagskrá og óskaði eftir að bæta inn nýjum dagskrárlið við lok fundar. Sá liður varðar upplýsingar um rannsókn lögreglu á tilvikum þar sem veist hefur verið að ungmennum í bænum. Breytingartillagan samþykkt samhljóða.
Dagskrá
01
Starfshættir nefnda
Ný skólanefnd boðin velkomin á fyrsta fund nýs kjörtímabils. Samþykkt að Jóhann Steinar Ingimundarson verði varaformaður nefndarinnar.
Skólanefnd kynntar reglur Garðabæjar um starfsemi og starfshætti nefnda.
02
Skyldur og ábyrgð skólanefnda
Samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga, "Yfirlit yfir skyldur og ábyrgð skólanefnda samvkvæmt lögum um grunnskóla", lögð fram til kynningar fyrir nýja skólanefnd.
03
Skólabyrjun og fjöldi nemenda skólaárið 2018-2019
Lagðar fram almennar upplýsingar um skólabyrjun og nemendafjölda í grunnskólum Garðabæjar haustið 2018.
04
Ársskýrslur grunnskóla 2017-2018
Ársskýrslur grunnskóla fyrir skólaárið 2017-2018 lagðar fram til kynningar. Að venju endurspegla skýrslurnar það fjölbreytilega og metnaðarfulla skólastarf sem fram fer í grunnskólum Garðabæjar.
05
Ytra mat - Flataskóli
Umbótaáætlun Flataskóla í kjölfar ytra mats, sem framkvæmt var á skólanum í janúar 2018, lögð fram.
06
Tillaga um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag
Rætt um mikilvægi hinsegin fræðslu, auk margs konar fræðslu í skólakerfinu svo sem eineltis-, forvarnar- og mannréttindafræðslu. Forstöðumanni fræðslusviðs falið að ræða við skólastjórnendur um fyrirkomulag fræðslunnar í grunnskólum Garðabæjar og mikilvægi þess að hún fari sannarlega fram og vel sé að henni staðið.
08
Menntadagur 26. október 2018
Menntadagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar verður föstudaginn 26. október, en sá dagur er sameiginlegur starfsdagur kennara beggja skólastiga.
Dagurinn er mikilvægur fyrir starfsfólk til að kynna verkefni sem hlotið hafa styrk úr þróunarsjóðum og þannig gefst starfsfólki tækifæri til að læra hvert af öðru.
09
Forvarnarvika haust 2018
Rætt um forvarnarviku sem verður í Garðabæ dagana 3.-10. október. Að þessu sinni verður fræðsla með áherslu á heilsueflandi samveru.
12
Vegna rannsóknar lögreglu
Fjallað var um tilvik þar sem veist hefur verið að ungmennum á opnum svæðum í bænum. Vísað í tilkynningu á heimasíðu Garðabæjar þar sem fram kemur að málið er á forræði lögreglu.