Beint í efni

2. fundur

07.09.2018
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

2. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Hönnunarsafni við Garðatorg

07.09.2018

Kl. 08:15 - 09:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1808084

01

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands 2018

Áframhald á fræðslu- og sögugöngum Garðabæjar, samstarf við Ferðafélag Íslands um lýðheilsugöngur 2018 kynnt.

Í haust verður framhald á fræðslu- og sögugöngum Garðabæjar og aftur verður farið í samstarf við Ferðafélag Íslands þar sem göngurnar verða jafnframt lýðheilsugöngur. Greint var frá undirbúningi við fjórar göngur miðvikudagana 5., 12., 19. og 26. september. Göngurnar verða kynntar á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu ásamt því að vera auglýstar í Garðapóstinum.

Hátt í 80 manns mættu í fyrstu gönguna sem var farin miðvikudaginn 5. september sl þar sem gengið var meðfram Arnarnesvoginum.

Málsnúmer 1710153

02

Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands

Bréf afmælisnefndar um viðburði í tengslum við aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands kynnt.

Bréf afmælisnefndar vegna þátttöku sveitarstjórna í verkefninu ,,Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands" var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 29. maí sl. og vísað til umfjöllunar m.a. í menningar- og safnanefnd.

Lagt fram og rætt. Bókasafn Garðabæjar og grunnskólar bæjarins hafa verið með ýmsa viðburði í undirbúningi vegna aldarafmælis fullveldisins, t.d. í tengslum við Dag íslenskrar tungu 16. nóvember nk.

Rætt var um möguleika á því að menningar- og safnanefnd standi fyrir ljósmyndasamkeppni þar sem þátttakendur myndu senda inn myndir úr daglegu lífi í Garðabæ nú á 100 ára afmæli fullveldisins.

Vísað til áframhaldandi umræðu á næsta fundi.

Málsnúmer 1808309

03

Vídalínsvika 2018

Greint var frá málþingi og viðburðum tengdum Jóni biskup Vídalín sem Vídalínskirkja/ Garðasókn stendur að í haust þar sem 300 ár eru liðin frá útgáfu Vídalínspostillu, en Jón Vídalín fæddist í Görðum á Álftanesi þann 21. mars 1666.

Ýmsar hugmyndir um viðburði sem væri hægt að tengja við þessi tímamót hafa verið kynntar meðal skóla og hjá Bókasafni Garðabæjar. Í bókasafninu er til skoðunar að sýna Vídalínspostillur í eigu safnsins og einnig að skoða möguleika á því að vera með erindi tengt efninu í safninu.

Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í að eiga samstarf við bókasafnið um útfærslu á viðburðum þessu tengt í bókasafninu.

Málsnúmer 1806110

04

Beiðni um styrk - Töframáttur tónlistar

Bréf verkefnisstjóra Töframáttar tónlistar, dags. 28.05.2018, um styrk vegna tónleikaraðarinnar veturinn 2018 tekið fyrir.

Bréf verkefnisstjóra, dags. 28.05.2018 um styrk vegna tónleikaraðinnar ,,Töframáttur tónlistar" tekið fyrir. Bæjarráð tók bréfið fyrir á fundi sínum 26. júní sl. og vísaði bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnanefnd telur eigi unnt að verða við erindinu.

Málsnúmer 1807225

05

Umsókn um styrk fyrir kvikmyndaverkefni

Styrkumsókn Víðis Hólms Ólafssonar, dags. 27.07.18, vegna kvikmyndaverkefnis tekin fyrir.

Bréf Víðis Hólms Ólafssonar, dags. 27.07.2018, um styrk vegna kvikmyndaverkefnis tekið fyrir.

Bæjarráð tók bréfið fyrir á fundi sínum 31. júlí sl. og vísar umsókninni til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnanefnd telur eigi unnt að verða við erindinu þar sem ekki hefur tíðkast að veita sérstaka styrki til lokaverkefna í skóla. Upplýsingastjóra er falið að ræða við bréfritara og benda á möguleika á því að sækja um styrk í Hvatningarsjóð ungra listamanna þegar til næstu úthlutunar kemur að vori.

Málsnúmer 1807047

06

Forgangsmarkmið samþykkt vegna heimsmarkmiðanna

Innleiðing Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna kynnt.

Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 3. júlí 2018, um innleiðingu Íslands á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna lagt fram. Bæjarráð Garðabæjar vísaði markmiðunum til kynningar í helstu nefndum bæjarins.

Lagt fram og rætt.

Málsnúmer 1808474

07

Menningarhátíð Norrænu félaganna í Reykjavík og Garðabæ

Bréf Norræna félagsins í Garðabæ, dags. 30.08.18, um styrk vegna norrænnar menningarhátíðar tekið fyrir.

Tekið var fyrir bréf Norræna félagsins í Garðabæ, dags. 30.08.2018, um styrk vegna menningarhátíðar sem félagið stendur fyrir ásamt fleirum dagana 4.-7. október 2018 í tengslum við norrænu menningarhátíðina Höstfarver. Fyrirhugað er að listamennirnir komi fram í Garðabæ 7. október nk.

Bæjarráð tók bréfið fyrir á fundi sínum 4. september sl. og vísaði því til afgreiðslu menningar- og safnanefndar. Í kjölfarið hefur upplýsingastjóri aflað frekari upplýsinga hjá formanni Norræna félagsins í Garðabæ um verkefnið.

Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið og felur upplýsingastjóra afgreiðslu málsins í samræmi við umræður á fundinum, varðandi samstarf Garðabæjar og Norrænafélagsins í Garðabæ um verkefnið.

Málsnúmer 1808480

08

Beiðni um stuðning við leikhús í Garðabæ

Bréf Leiksmiðjunnar Friggjar, dags. 30.08.18, um stuðning við uppbyggingu leikhúss í Garðabæ tekið fyrir.

Bréf Leiksmiðjunnar Friggjar varðandi stuðning við að byggja upp leikhús í Garðabæ. Bæjarráð tók bréfið fyrir á fundi sínum 4. september sl. og vísaði bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Lagt fram og rætt. Vísað til áframhaldandi umræðu á næsta fundi.

Málsnúmer 1808275

09

Heimsókn í Hönnunarsafn Íslands

Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, segir frá starfssemi safnsins og sýnir húsið.

Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafnsins, sagði nefndarmönnum frá starfssemi safnsins. Hönnunarsafn Íslands er hönnunar- og fræðamiðstöð og jafnframt miðstöð safnastarfsemi á sviði hönnunar og er eina safnið sinnar tegundar á Íslandi. Safnið varðveitir hátt í 4000 safngripi.

Í lok kynningar forstöðumannsins var farið í skoðunarferð um húsakynni safnsins.

Sigríði var þökkuð greinargóð kynning á starfsemi safnsins.