Vídalínsvika 2018
Málsnúmer 1808309
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
2. fundur
Greint var frá málþingi og viðburðum tengdum Jóni biskup Vídalín sem Vídalínskirkja/ Garðasókn stendur að í haust þar sem 300 ár eru liðin frá útgáfu Vídalínspostillu, en Jón Vídalín fæddist í Görðum á Álftanesi þann 21. mars 1666.
Ýmsar hugmyndir um viðburði sem væri hægt að tengja við þessi tímamót hafa verið kynntar meðal skóla og hjá Bókasafni Garðabæjar. Í bókasafninu er til skoðunar að sýna Vídalínspostillur í eigu safnsins og einnig að skoða möguleika á því að vera með erindi tengt efninu í safninu.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í að eiga samstarf við bókasafnið um útfærslu á viðburðum þessu tengt í bókasafninu.