Beint í efni

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands 2018

Málsnúmer 1808084

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

2. fundur

Áframhald á fræðslu- og sögugöngum Garðabæjar, samstarf við Ferðafélag Íslands um lýðheilsugöngur 2018 kynnt.

Í haust verður framhald á fræðslu- og sögugöngum Garðabæjar og aftur verður farið í samstarf við Ferðafélag Íslands þar sem göngurnar verða jafnframt lýðheilsugöngur. Greint var frá undirbúningi við fjórar göngur miðvikudagana 5., 12., 19. og 26. september. Göngurnar verða kynntar á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu ásamt því að vera auglýstar í Garðapóstinum.
Hátt í 80 manns mættu í fyrstu gönguna sem var farin miðvikudaginn 5. september sl þar sem gengið var meðfram Arnarnesvoginum.