Gilsbúð 9,br á dsk Bæjargils
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (835). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa að Gilsbúð 9 um aukið byggingarmagn og stækkun byggingareits á lóðinni.
Bæjarráð Garðabæjar
02
34. (1849). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Gilsbúð 9 um aukið byggingarmagn og stækkun byggingareits á lóðinni.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Lagt fram erindi lóðarhafa þar sem óskað er eftir því að deiliskipulagi verði breytt þannig að unnt verði að byggja 700 m2 viðbyggingu í norðvesturhluta lóðar og tengja við núverandi byggingar.
Lóðin var stækkuð til norðurvesturs fyrir fjórum árum með deiliskipulagsbreytingu og byggingarreitur stækkaður sem nemur 100 fermetrum.
Skipulagsnefnd telur að aukið byggingarmagn í átt að Arnarneslæk rýri gildi opna svæðisins og hafnar því tillögunni.
Bæjarráð Garðabæjar
04
20. (1688). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á deiliskipulagi Bæjargils varðandi lóðina við Gilsbúð 9 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda komu ekki fram neinar athugasemdir á kynningartímabili sem var frá 7. apríl - 19. maí 2015.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargils sem nær til lóðarinnar Gilsbúð 9 að lokinni kynningu. Tillagan var í kynningu frá 7.apríl itl 19.maí. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
2. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu um breytingu á deiliskipulagi Gilsbúðar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. vegna stækkunar lóðarinnar nr. 9 og breytingu á bílastæði fyrir stóra bifreiðar.
Bæjarráð Garðabæjar
07
3 (1671). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu um breytingu á deiliskipulagi Gilsbúðar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. vegna stækkunar lóðarinnar nr. 9 og breytingu á bílastæði fyrir stóra bifreiðar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bæjargils sem nær til lóðarinnar Gilsbúð 9. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar og að bílastæði fyrir stóra bíla utan lóða verði lagt af.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga.