1. fundur
1. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
15.01.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Auður Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Búðir, Ásbúð og Holtsbúð, deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Búða, Ásbúðar og Holtsbúðar að lokinni forkynningu.$line$Skipulagsnefnd leggur áherslu á að útfærsla tengingar aðkomu að þjónustubyggingu við Holtsbúð við Karlabraut tryggi öryggi gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Hugað verði að öryggi þverunar göngustígs yfir Karlabraut.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.
02
Gilsbúð 9,br á dsk Bæjargils
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bæjargils sem nær til lóðarinnar Gilsbúð 9. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar og að bílastæði fyrir stóra bíla utan lóða verði lagt af.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga.
03
Hellagata 31, fyrirspurn um fjölgun íbúða
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Hellagötu 31 um fjölgun íbúða úr 9 í 12. Áður hefur verið samþykkt að fjölga íbúðum úr 6 í 9.$line$Svarið er neikvætt.
04
Holtsvegur 27, dsk br Urr.Vesturhl, viðbótaríbúð.
Lögð fram tillaga að um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um fjölda íbúða verði 10 í stað 9. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf sem tekur jákvætt í tillöguna.$line$Skipulagsnefnd tekur undir framlagða umsögn og beinir því til umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu deiliskipulags.$line$Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála. $line$Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
05
Holtsvegur 41, dsk br Vesturhl Urriðaholts, viðbótaríbúð.
Lögð fram tillaga að um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um fjölda íbúða verði 10 í stað 9. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf sem tekur jákvætt í tillöguna.$line$Skipulagsnefnd tekur undir framlagða umsögn og beinir því til umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu deiliskipulags.Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála. $line$Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.$line$Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
06
Kirkjubrú 1, dsk
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi eignarhald og afstöðu landeigenda aðliggjandi lands.
07
Bæjargata 11-19, dsk br Vesturhluti Urriðaholts.
Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda breytinguna til Skipulagsstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.
08
Mosagata, dsk breyting á Vesturhluta Urriðaholts.
Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda breytinguna til Skipulasstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.
09
Urriðaholt, Norðurhluti 2 deiliskipulag
Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda deiliskipiulagið til Skipulasstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.
10
Urriðaholtsstræti 6-8, br á dsk Urriðaholts Viðskiptastrætis.
Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda breytinguna til Skipulagsstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.