Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Bæjargötu 11-19, deiliskipulagsbreyting í vesturhluta Urriðaholts, dags. 15.01.15.

Málsnúmer 1411034

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

3 (1671). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

1. fundur

Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda breytinguna til Skipulagsstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

43. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna raðhúsa á lóðinni við Bæjargötu 11 - 19. Um málsmeðferð fer samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43 gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

17. fundur

Egill Guðmundsson arkitekt kynnti tillögu að breytingu deiliskiplags Vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að hæð raðhúsa R3 á lóðinni Bæjargata 11-19 breytist úr 3 hæðum í 2-3 hæðir.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.