3 (1671). fundur
3 (1671). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
20.01.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Bréf Alþjóðaskólans varðandi úrbætur í umferðar- og öryggismálum í nágrenni Sjálandsskóla, dags. 08.01.15.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir framkvæmdum við breytingar sem nú standa yfir á gönguleiðum að skólanum til að auka umferðaröryggi. Þá kom fram að í undirbúningi er að merkja skólann við aðkomu frá Löngulína. $line$$line$Bæjarráð vísar bréfinu til frekari skoðunar tækni- og umhverfissviðs..
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Bæjargötu 11-19, deiliskipulagsbreyting í vesturhluta Urriðaholts, dags. 15.01.15.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
03
Bréf Golfklúbbsins Odds varðandi fasteignagjöld, dags. 08.01.15.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbinum Oddi styrk að fjárhæð kr. 1.071.553 fyrir árið 2014 og kr. 1.403.060 fyrir árið 2015 til greiðslu fasteignagjalda.
04
Fjölmiðlavaktin, Garðabær í fjölmiðlum 2014
Lögð fram skýrsla Fjölmiðlavaktarinnar um umfjöllun um Garðabæ í fjölmiðlum. Samkvæmt skýrslunni var fjallað um Garðabæ í 427 fréttum/greinum á árinu 2014. Þar af voru 43 fréttir í sjónvarpi/útvarpi, 220 í prentmiðlum og 164 í netmiðlum.
05
Bréf Auðar Hallgrímsdóttur varðandi lausn frá störfum sem varabæjarfulltrúi, dags. 15.01.15.
Lagt fram.
06
Bréf Veraldarvina varðandi samstarf á sviði umhverfis- og/eða menningartengdra verkefna, dags. 13.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umverfissviðs og mannauðsstjóra.
07
Bréf mannauðsstjóra varðandi umsókn Guðmundu I. Gunnarsdóttur um styrk til að stunda fjarnám, ódags.
Bæjarráð samþykkir að veita Guðmundu I. Gunnarsdóttur, styrk sem nemur 10% afslætti af vikulegri vinnuskyldu vegna tveggja ára meistaranáms í leikskólafræðum á háskólastigi.
08
Bréf verkefnastjóra Friðsældar í febrúar varðandi styrk vegna verkefnisins Friðsæld í febrúar, dags. 08.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Ásbúð og Holtsbúð, dags. 15.1.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.
10
Bréf sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu varðandi umsögn um umsókn vegna þorrablóts á Álftanesi, dags. 15.01.15.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Gilsbúð 9,breyting á deiliskipulagi Bæjargils, dags. 15.01.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu um breytingu á deiliskipulagi Gilsbúðar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. vegna stækkunar lóðarinnar nr. 9 og breytingu á bílastæði fyrir stóra bifreiðar.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Hellagötu 31, fyrirspurn um fjölgun íbúða, dags. 15.01.15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa lóðarinnar við Hellagötu 31 um fjölgun íbúða úr 9 í 12 en áður hefur verið samþykkt að fjölga íbúðum úr 6 í 9.
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Mosagötu, deiliskipulagsbreyting á vesturhluta Urriðaholts, dags. 15.01.15.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag norðurhluta 2, Urriðaholti, dags. 15.01.15.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Urriðaholtsstræti 6-8, breyting á deiliskipulagi Urriðaholts Viðskiptastrætis, dags. 15.01.15.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
16
Bréf Hjallastefnunnar varðandi fækkun leikskólaplássa við leikskólann Ása, dags. 13.01.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs.
17
Bréf Fjármálaeftirlitsins varðandi eftirlitsgjald á útgefendur hlutabréf og skuldabréfa 2015, dags. 14.01.15.
Lagt fram.
18
Auglýsing um skrá yfir þau störf hjá Garðabæ sem eru undanþegin verkfallsheimild
Bæjarritari gerði grein fyrir drögum að skrá yfir þá starfsmenn hjá sveitarfélaginu sem ekki hafa heimild til að fara í verkfall.$line$$line$Bæjarráð samþykkir skrána og felur bæjarstjóra að birta hana samkvæmt 2. mgr. 19. gr. laga um kjarasamningi opinberra starfsmanna nr. 94/1986.
19
Íbúakönnun 2014 - þjónusta sveitarfélaga
Lögð fram könnun Capacent á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins og samanburð milli sveitarfélaga ásamt breytingum frá fyrri mælingum.$line$$line$Bæjarráð vísar könnuninni til kynningar í nefndum bæjarins.