Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Urriðaholtsstræti 6-8, breyting á deiliskipulagi Urriðaholts Viðskiptastrætis, dags. 15.01.15.

Málsnúmer 1410465

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

3 (1671). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

1. fundur

Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda breytinguna til Skipulagsstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

43. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir viðskiptastræti Urriðaholts er varðar lóðina við Urriðaholtsstræti 6-8. (Náttúrufræðistofnun). Um málsmeðferð fer samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43 gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

17. fundur

Egill Guðmundsson arkitekt kynnti tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Viðskiptastrætis sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 6-8 þar sem Náttúrfræðistofnun er til húsa. Gert er ráð fyrir því að lóðin minnki úr 5.261 m2 í 3.899 m2 eða um 1362 m2. Mörk deiliskipulagsins breytast. Bílastæðum á lóðinni fækkar því um 12 stæði enda sýnir fengin reynsla að næg bílastæði eru á lóð. Kvöð verður sett á bílastæði á lóðinni Lynggata 1-3 um afnotarétt lóðarinnar Urriðaholtsstræti 6-8.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að heimila kynningu breytingartillögnnar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.