43. fundur
43. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.11.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1410458
01
Bréf stjórnar Foreldrafélags Álftanesskóla varðandi úrbætur í húsnæðismálum skólans, dags. 30.10.14.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðum á opnum fund er foreldrafélagið boðaði til miðvikudaginn 5. nóvember sl. $line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að skipaður verði rýnihóp til að fjalla um húsnæðismál skólans. Bæjarstjóra falið að koma með tillögu að erindisbréfi um skipan hópsins.
Málsnúmer 1411002
02
Bréf Elínar Jóhannsdóttur varðandi endurskoðun skipulags á svæði milli Asparholts og hestshúsabyggða á miðsvæði Álftaness, dags. 24.03.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar skipulagsnefndar í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.
Málsnúmer 1411029
03
Bréf SSH varðandi fjárhagsáætlun vegna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins á árinu 2015, dags. 03.11.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
Málsnúmer 1411034
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á vesturhluta Urriðaholts vegna Bæjargötu 11-19, dags. 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna raðhúsa á lóðinni við Bæjargötu 11 - 19. Um málsmeðferð fer samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43 gr. sömu laga.
Málsnúmer 1410471
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum, skipting deiliskipulags, dags. 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að skipta upp sameiginlegu deiliskipulagi Garðabæjar og Hafnarfjarðar fyrir svæðið frá Hleinum að Langeyramölum og auglýsa tillögu að breytingu á skipulagi Hleina innan bæjarmarka Garðabæjar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1410466
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna Kauptúns 4, 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Í tillögunni felst að byggingarmagn er aukið úr 15.000 m2 í 21.000m2 vegna stækkunar á milligólfi. Um málsmeðferð fer samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 og 44. gr sömu laga er varðar framkvæmd grenndarkynningar.
Málsnúmer 1410464
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna Mosagötu, dags. 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts þar sem gert er ráð fyrir að íbúðum við Mosagötu fjölgi um 22 eða úr 79 í 101. Þar af fjölgar íbúðum í fjölbýli úr 72 í 89 en íbúðum í sérbýli fjölgar úr 7 í 12. Íbúðir í sérbýli voru raðhús en verða parhús, þar af verða 8 neðan götu en 4 ofan götu. Bílastæðum fjölgar úr 170 í 233. Lóðamörk ofan fjölbýlishúsa breytast lítillega og svæðið sem skipulagið nær til stækkar lítillega til norðurs og austurs. Um málsmeðferð fer samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1406288
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts, dags. 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1410465
09
Bréf skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna Urriðaholtsstrætis 6-8, Viðskiptastrætis, dags. 06.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir viðskiptastræti Urriðaholts er varðar lóðina við Urriðaholtsstræti 6-8. (Náttúrufræðistofnun). Um málsmeðferð fer samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43 gr. sömu laga.
Málsnúmer 1304321
10
Bréf Samkeppniseftirlitsins varðandi álit um samkeppnishömlur við meðhöndlun úrgangs - endurvinnslutunnur fyrir pappír, dags. 05.11.14.
Í álitnu er þeim tilmælum beint til sveitarfélaga sem viðhafa sama verklag og Garðabær varðandi söfnun pappír og pappa frá heimilum að taka til skoðunar hvernig þau geti sem best nýtt samkeppnishvata á þessum sviðum. Að lágmarki er mælst til þess að bjóða bæði söfnun/flutning og móttöku þess endurvinnsluefnis sem safnað er í pappírstunnur. Með því móti má ná kostum samkeppni á fleiri sviðum en einungis söfnun endurvinnsluefnis í viðkomandi sveitarfélögum$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til nánar skoðunar bæjarstjóra
Málsnúmer 1410479
11
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi strandblakvöll, dags. 31.10.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1411042
12
Bréf nefndarsviðs Alþings varðandi tillögu til þingsályktunar um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs, 26. mál, dags. 04.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1411030
13
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi þorrablót Stjörnunnar 2015, dags. 04.11.14.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Stjörnunnar í íþróttamiðstöðinni Mýrinni föstudaginn 24. janúar 2015.$line$$line$Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1409027
14
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi framlög vegna nýbúafræðslu 2015, dags. 29.10.14.
Lagt fram
Málsnúmer 1411093
15
Bréf Munins - kvikmyndagerðar ehf. varðandi styrkbeiðni vegna heimildarmyndar um knattspyrnudeild Stjörnunnar, dags. 06.11.14.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs, menningar- og safnanefndar og mannréttinda- og forvarnanefndar.
Málsnúmer 1310497
16
Drög að samningi um uppbyggingu félags- og íþróttamiðstöðvar Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að vísa samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1409324
17
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi vegna íbúafundar um fjárhagsáætlun sem fyrirhugaður er fimmtudaginn 13. nóvember nk.$line$$line$Farið var í heimsóknir í eftirfarandi stofnanir bæjarins. $line$$line$Álftanesskóla$line$Leikskólann Krakkakot$line$Leikskólann Holtakot$line$Íþróttamiðstöðina á Álftanesi