Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum, skipting deiliskipulags, dags. 06.11.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
43. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að skipta upp sameiginlegu deiliskipulagi Garðabæjar og Hafnarfjarðar fyrir svæðið frá Hleinum að Langeyramölum og auglýsa tillögu að breytingu á skipulagi Hleina innan bæjarmarka Garðabæjar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
17. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum sem gerir ráð fyrir skiptingu deiliskipilagsins á bæjarmörkum Hafnarfjarðarkaupstaðar og Garðabæjar. Eftir að mörkin á milli sveitarfélaga var breytt og þau löguð að lóðarmörkum Hrafnistu er ekki þörf á að deiliskipulagið nái inn í lögsögu beggja sveitarfélaga. Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.