Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna Kauptúns 4, 06.11.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
43. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Í tillögunni felst að byggingarmagn er aukið úr 15.000 m2 í 21.000m2 vegna stækkunar á milligólfi. Um málsmeðferð fer samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 og 44. gr sömu laga er varðar framkvæmd grenndarkynningar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
17. fundur
Egill Guðmundsson arkitekt hjá Arkís kynnti tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 (IKEA). Tillagan gerir ráð fyrir auknu byggingarmagni um 1500 m2 úr 21.000 m2 í 22.500. Fyrirhugað er að stækka milligólf. Tillagan gerir einnig ráð fyrir því að lágmarksfjöldi bílastæða fyrir lóðina verði 1:26 í stað 1:25. Lagt fram minnisblað Alta ehf vegan bílastæðaþarfar. Lagt fram erindi frá Rekstrarfélagi Kauptúns þar sem fram kemur að félagið gerir ekki athugsemdir við tillöguna.$line$Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu í samræmi við 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga og vísar henna til grenndarkynnngar. Grenndarkynna skal öllum rekstraraðilum og eigendum í Kauptúni.