Heimildarmynd um Stjörnuna
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
4. fundur
ÍTG fagnar þeim stórhug að ráðast í gerð heimildarmyndar um velgengni meistaraflokka Stjörnunnar í knattspyrnu og eftirminnilega framgöngu stuðningsmannafélags félagsins. Slík skráning á samtímasögu félagsins hefur mikið gildi, ekki síst þegar frá líður.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
3. fundur
Tekið var til umfjöllunar bréf Munins Kvikmyndagerðar dags. 06.11.2014 um styrk vegna heimildarmyndar um Stjörnuna ásamt bréfi dags. 07.11.2014 frá rekstrarstjóra knattspyrnudeildar Stjörnunnar varðandi sama mál. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 11. nóvember sl. að vísa erindinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar, íþrótta- og tómstundaráðs og mannréttinda- og forvarnarnefndar. $line$Eftir umfjöllun um málið var samþykkt að styrkja verkefnið um 100 þúsund krónur. $line$$line$Menningar- og safnanefnd lítur svo á að með skráningu íþróttafélaga og annarra félagasamtaka í Garðabæ á merkum viðburðum í sögu sinni séu félög og félagasamtök jafnframt að stuðla að söfnun og varðveislu mikilvægra heimilda um mannlífið í bænum. $line$Með styrkveitingunni vill nefndin leggja áherslu á menningarlegt gildi íþrótta og mikilvægi sterkrar tengingar íþróttalífs og menningar í þjóðfélaginu auk þess sem nefndin vill á þennan hátt veita Stjörnunni og hinu geysiöfluga stuðningsmannafélagi félagsins, Silfurskeiðinni, viðurkenningu fyrir afar merkt samfélagslegt framlag til íbúa Garðabæjar á árinu 2014. $line$$line$EJ sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$
Bæjarráð Garðabæjar
03
43. fundur
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs, menningar- og safnanefndar og mannréttinda- og forvarnanefndar.