Beint í efni

3. fundur

14.11.2014
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

3. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7

14.11.2014

Kl. 08:15 - 08:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1409324

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri og Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs mættu á fundinn og fóru yfir helstu áherslur og niðurstöður frumvarps að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015, eins og það var lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 6. nóvember sl. $line$Farið var einstaka þætti fjárframlags til málaflokks 05-menningarmál í frumvarpinu.$line$Í erindi fjármálastjóra kom fram að síðari umræða um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 fari fram fimmtudaginn 4. desember 2014.$line$Umræður voru um málið. Formaður beindi því til nefndarinnar að ábendingar og athugasemdir nefndarmanna varðandi málaflokkinn 05-menningarmál í fyrirliggjandi frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2015 skyldu sendar upplýsinga- og menningarfulltrúa til frekari úrvinnslu fyrir síðari umræðu um fjárhagsáætlunina í bæjarstjórn. $line$

Málsnúmer 1409370

02

Tónlistarveisla í skammdeginu 2014

Tónleikar undir yfirskriftinni Tónlistarveisla í skammdeginu 2014 voru haldnir á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 13. nóvember sl. kl. 21:00-22:30.$line$Jóhann Sigurðarson leikari og söngvari steig á svið ásamt hljómsveit sinni við góðar undirtektir tónleikagesta. Fjölmenni, áætlað um 300 manns, mætti á tónleikana.$line$Fyrr um kvöldið opnaði einnig haustsýning Grósku í Gróskusalnum á efri hæðinni Garðatorgi 1, verslanir á Garðatorgi voru opnar. Skapaði öll þessi umgjörð góða bæjarstemningu á torginu allt kvöldið. $line$Farið var yfir hvernig tókst til með menningarviðburði kvöldsins.$line$

Málsnúmer 1409378

03

Æfingahúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk í Garðabæ

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs greindi frá því að í skoðun er að koma upp æfingahúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk í kjallara Holtsbúðar. $line$Frekari vinna er framundan við að greina hvað til þarf til að koma hinu nýja æfingahúsnæði í gagnið.$line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi mun fylgja málinu eftir og upplýsa menningar- og safnanefnd um framgang þess.$line$

Málsnúmer 1306485

04

Bjarnastaðir - menningar- og náttúrufræðihús

Hátíðardagskrá í tilefni af aldarafmæli Bjarnastaða fór fram laugardaginn 4. október sl. í hátíðarsal íþróttahússins á Álftanesi. Hátíðin tókst mjög vel og voru um 130 gestir viðstaddir dagskrána. $line$Menningar- og safnanefnd þakkar Félagi áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla og Fugla- og Náttúruverndarfélagi Álftaness, sem skipulögðu hátíðina í samstarfi við Garðabæ, fyrir mjög góðan undirbúning. $line$Rætt var um notkun á húsnæðinu á Bjarnastöðum og hvers konar starfsemi sé til skoðunar að hafa í húsinu í framtíðinni. $line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi lagði fram drög að auglýsingu eftir umsóknum um afnot félaga og félagasamtaka í Garðabæ af húsnæði á Bjarnastöðum. Auglýsingin verður birt í næsta Garðapósti og á vef Garðabæjar. Í henni kemur m.a. fram að áhugasamir geti skoðað húsnæðið í fylgd upplýsinga- og menningarfulltrúa mánudaginn 24. nóvember frá kl. 17-19. Umsóknarfrestur verður til 12. desember 2014.$line$

Málsnúmer 1411138

05

Verkefni á vorönn

Farið var yfir helstu verkefni sem hafa verið á vorönn síðustu ára og þau sem framundan eru á vorönn 2015. $line$Safnanótt verður haldin föstudaginn 6. febrúar 2015 og flest söfn á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í verkefninu. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík. Fyrirhugað er að Bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands taki þátt eins og undanfarin ár, auk þess sem opið hús hefur verið í Króki á Garðaholti í tengslum við Safnanótt.$line$Sundlauganótt verður haldin á laugardegi viku síðar og áhugi er fyrir því að vera með á ný. $line$Rætt var um Þriðjudagsklassík og hugsanlegt áframhald á því verkefni. Einnig var rætt um Jazzhátíð Garðabæjar á vorönn 2015. $line$Formaður og upplýsinga- og menningarfulltrúi munu hitta forsvarsmenn þessara verkefna að máli og taka saman upplýsingar um áframhald verkefnanna sem síðan verður farið yfir á næsta fundi menningar- og safnanefndar.$line$

Málsnúmer 1410108

06

Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju desember 2014

Tekið var til umfjöllunar bréf kammerhópsins Camerarctica dags. 22.09.2014 með ósk um styrk vegna tónleika undir yfirskriftinni ?Mozart við kertaljós? í Garðakirkju laugardaginn 21. desember 2014.$line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita kammerhópnum Camerarctica styrk að upphæð 120.000 kr vegna tónleikanna.$line$

Málsnúmer 1411126

07

Beiðni um styrk

Tekið var til umfjöllunar erindi Baldvins Ingvars Tryggvasonar dags. 10.11.2014 um styrk til greiðslu ferðakostnaðar vegna meistaranáms við Royal College of Music í London.$line$Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við erindinu þar sem ekki hefur tíðkast að veita sérstaka ferðastyrki með þessum hætti. Nefndin er þó opin fyrir því að kanna aðra samstarfsfleti við umsækjanda í framtíðinni, t.d. varðandi tónlistarflutning í tengslum við viðburði á vegum nefndarinnar.$line$

Málsnúmer 1411093

08

Styrkbeiðni vegna heimildarmyndar um Stjörnuna

Tekið var til umfjöllunar bréf Munins Kvikmyndagerðar dags. 06.11.2014 um styrk vegna heimildarmyndar um Stjörnuna ásamt bréfi dags. 07.11.2014 frá rekstrarstjóra knattspyrnudeildar Stjörnunnar varðandi sama mál. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 11. nóvember sl. að vísa erindinu til umfjöllunar menningar- og safnanefndar, íþrótta- og tómstundaráðs og mannréttinda- og forvarnarnefndar. $line$Eftir umfjöllun um málið var samþykkt að styrkja verkefnið um 100 þúsund krónur. $line$$line$Menningar- og safnanefnd lítur svo á að með skráningu íþróttafélaga og annarra félagasamtaka í Garðabæ á merkum viðburðum í sögu sinni séu félög og félagasamtök jafnframt að stuðla að söfnun og varðveislu mikilvægra heimilda um mannlífið í bænum. $line$Með styrkveitingunni vill nefndin leggja áherslu á menningarlegt gildi íþrótta og mikilvægi sterkrar tengingar íþróttalífs og menningar í þjóðfélaginu auk þess sem nefndin vill á þennan hátt veita Stjörnunni og hinu geysiöfluga stuðningsmannafélagi félagsins, Silfurskeiðinni, viðurkenningu fyrir afar merkt samfélagslegt framlag til íbúa Garðabæjar á árinu 2014. $line$$line$EJ sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$

Málsnúmer 1411139

09

Vettvangsferð um Bókasafn Garðabæjar

Oddný H. Björgvinsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar kynnti starfsemi bókasafnsins og sagði m.a. frá sérstakri áherslu safnsins undanfarið á lestrarhvatningu til barna frá unga aldri. $line$Í kjölfarið fylgdu umræður um ýmsa starfsemi Bókasafns Garðabæjar. $line$