Tónlistarveisla í skammdeginu 2014
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Tónleikar undir yfirskriftinni Tónlistarveisla í skammdeginu 2014 voru haldnir á Garðatorgi fimmtudagskvöldið 13. nóvember sl. kl. 21:00-22:30.$line$Jóhann Sigurðarson leikari og söngvari steig á svið ásamt hljómsveit sinni við góðar undirtektir tónleikagesta. Fjölmenni, áætlað um 300 manns, mætti á tónleikana.$line$Fyrr um kvöldið opnaði einnig haustsýning Grósku í Gróskusalnum á efri hæðinni Garðatorgi 1, verslanir á Garðatorgi voru opnar. Skapaði öll þessi umgjörð góða bæjarstemningu á torginu allt kvöldið. $line$Farið var yfir hvernig tókst til með menningarviðburði kvöldsins.$line$
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Farið var yfir mögulega dagsetningu, tónlistaratriði og drög að kostnaði við Tónlistarveislu í skammdeginu. Samþykkt að stefna að tónleikahaldi fimmtudaginn 13. nóvember nk. á Garðatorgi. Upplýsinga- og menningarfulltrúi upplýsir nefndarmenn um áframhaldandi undirbúning.