2. fundur
2. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
25.09.2014
Kl. 08:00 - 08:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
01
Bjarnastaðir - menningar- og náttúrufræðihús
Formaður greindi frá fyrirhugaðri hátíðardagskrá í tilefni af aldarafmæli Bjarnastaða laugardaginn 4. október nk. kl. 14-16. Dagskráin fer fram í hátíðarsal íþróttahússins á Álftanesi og er skipulögð af Félagi áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla og Fugla- og náttúruverndarfélagi Álftaness í samstarfi við Garðabæ.$line$Farið var yfir undirbúning hátíðardagskrárinnar og sagt frá hugmyndum varðandi notkun hússins í framtíðinni.$line$
02
Fjármál menningar- og safnanefndar
Upplýsinga- og menningarfulltrúi lagði fram yfirlit yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála skv. fjárhagsáætlun þessa árs. $line$Einnig var greint frá verkferli við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.$line$Á næsta fundi nefndarinnar verður fjallað nánar um fjárhagsáætlun næsta árs áður en hún fer til umræðu hjá bæjarstjórn.$line$$line$$line$
03
Verkefni haustsins 2014
Áframhald umræðu frá síðasta fundi nefndarinnar. Rætt var um möguleika á því að halda opinn fund /málþing um menningarmál með svipuðu sniði og framtíðarþing um farsæl efri ár sem var haldið sl. vor. Rætt var um fyrirkomulag slíks fundar, tímasetningu eftir áramót og aðgerðarplan í menningarmálum. Samþykkt að upplýsinga- og menningarfulltrúi vinni áfram að málinu.
04
Tónlistarveisla í skammdeginu 2014
Farið var yfir mögulega dagsetningu, tónlistaratriði og drög að kostnaði við Tónlistarveislu í skammdeginu. Samþykkt að stefna að tónleikahaldi fimmtudaginn 13. nóvember nk. á Garðatorgi. Upplýsinga- og menningarfulltrúi upplýsir nefndarmenn um áframhaldandi undirbúning.
05
Æfingahúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk í Garðabæ
Rætt var um stöðu mála varðandi æfingahúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk í Garðabæ. $line$Nefndin er sammála um að við umfjöllun um fjárhagsáætlun 2015 verði til skoðunar hvort og hvernig koma megi upp æfingaaðstöðu fyrir ungt tónlistarfólk í bænum. $line$
06
Umsóknir um vinnuaðstöðu í Króki veturinn 2014-2015
Samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að eftirtaldir listamenn fái afnot af vinnuaðstöðunni í Króki:$line$Þuríður Jónsdóttir, kt. 300367-5859, tónskáld, til heimilis að Boðagranda 4, Rvk, tímabilið 1. nóvember 2014- 1. febrúar 2015.$line$Bjargey Ólafsdóttir, kt. 271172-4009, Melhaga 17, Rvk, myndlist og ritlist, tímabilið 1. apríl - 31. maí 2015.$line$Laus tímabil í Króki verða auglýst áfram. $line$$line$
07
Klifið - kynning á starfsemi
Ágústa Guðmundsdóttir og Ásta Sölvadóttir frá Klifinu komu á fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu starfssemi Klifsins sem nú fer af stað fimmta veturinn. Þær greindu frá framtíðarsýn Klifsins og fóru m.a. yfir starfssemi tónlistardeildar og listdansdeildar og hugmyndafræðinni þar á bakvið. Rætt var um samstarfssfleti í víðu samhengi við menningarnefnd og bæjaryfirvöld.$line$Menningar- og safnanefnd þakkaði þeim fyrir greinargóða kynningu á Klifinu.$line$