Æfingahúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk í Garðabæ
Málsnúmer 1409378
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs greindi frá því að í skoðun er að koma upp æfingahúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk í kjallara Holtsbúðar. $line$Frekari vinna er framundan við að greina hvað til þarf til að koma hinu nýja æfingahúsnæði í gagnið.$line$Upplýsinga- og menningarfulltrúi mun fylgja málinu eftir og upplýsa menningar- og safnanefnd um framgang þess.$line$
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Rætt var um stöðu mála varðandi æfingahúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk í Garðabæ. $line$Nefndin er sammála um að við umfjöllun um fjárhagsáætlun 2015 verði til skoðunar hvort og hvernig koma megi upp æfingaaðstöðu fyrir ungt tónlistarfólk í bænum. $line$