Verkefni haustsins 2014
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
2. fundur
Áframhald umræðu frá síðasta fundi nefndarinnar. Rætt var um möguleika á því að halda opinn fund /málþing um menningarmál með svipuðu sniði og framtíðarþing um farsæl efri ár sem var haldið sl. vor. Rætt var um fyrirkomulag slíks fundar, tímasetningu eftir áramót og aðgerðarplan í menningarmálum. Samþykkt að upplýsinga- og menningarfulltrúi vinni áfram að málinu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
1. fundur
Upplýsinga- og menningarfulltrúi lagði fram yfirlit yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála skv. fjárhagsáætlun 2014. Uppfært yfirlit verður sent nefndarmönnum á næstu dögum og farið nánar yfir stöðuna á næsta fundi.$line$$line$Til umræðu komu væntanleg menningarverkefni haustsins, m.a. stefnumótun, form styrkveitinga, aukið samstarf við félagasamtök í menningarmálum, aukinn sess Vífilsstaða sem merks sögustaðar í Garðabæ og hugsanlegir haustviðburðir. Nefndin samþykkti að halda Tónlistarveislu í skammdeginu í nóvember 2014. Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að hefja undirbúning viðburðarins. $line$$line$Á vegum fráfarandi menningar- og safnanefndar var komin af stað vinna við gerð samstarfssamnings við lista- og menningarfélagið Dægradvöl sem staðið hefur fyrir ýmsum menningarviðburðum á Álftanesi frá stofnun. Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að halda því verki áfram í samvinnu við Dægradvöl til framlagningar í nefndinni.$line$$line$Umræðu um haustverkefni 2014 verður haldið áfram á næsta fundi nefndarinnar í september og verða þá jafnframt til skoðunar menningarverkefni fyrir vorið 2015. Samþykkt var að samþætta næsta fund vettvangsferð nefndarinnar í Hönnunarsafnið, bókasafnið og e.t.v. fleiri staði ef tími vinnst til (Krókur, Hofsstaðir).