1. fundur
1. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
18.08.2014
Kl. 16:30 - 16:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1408356
01
Kosning varaformanns menningar- og safnanefndar
Formaður lagði til að Torfi Geir Símonarson verði varaformaður menningar- og safnanefndar kjörtímabilið 2014-2018. $line$Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1408354
02
Hlutverk og starfsemi menningar- og safnanefndar
Fyrir fundinum lá samantekt bæjarritara, dags. 24.06.2014, um nokkur atriði er varða starfshætti nefnda í Garðabæ. $line$Farið var yfir hlutverk og starfsemi menningar- og safnanefndar en nefndin starfar í umboði bæjarstjórnar að eflingu lista- og menningarlífs í Garðabæ. Hulda Hauksdóttir, upplýsinga- og menningarfulltrúi sýndi glærukynningu af helstu verkefnum undanfarinna ára. $line$$line$Nefndarmenn fengu afhentan til upplýsingar bæklinginn Stefna í menningarmálum í Garðabæ sem gefinn var út af bænum árið 2005 en stefna Garðabæjar í menningarmálum var samþykkt í bæjarstjórn 6. október 2005. $line$ $line$Fundatilhögun menningar- og safnanefndar var rædd og fundarkerfi nefndarmanna kynnt. Áætlað er að nefndin fundi að jafnaði um sex sinnum á ári. Stefnt er að morgunfundum og að næsti fundur nefndarinnar verði fimmtudaginn 25. september 2014 kl. 08:00.
Málsnúmer 1408349
03
Verkefni haustsins 2014
Upplýsinga- og menningarfulltrúi lagði fram yfirlit yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála skv. fjárhagsáætlun 2014. Uppfært yfirlit verður sent nefndarmönnum á næstu dögum og farið nánar yfir stöðuna á næsta fundi.$line$$line$Til umræðu komu væntanleg menningarverkefni haustsins, m.a. stefnumótun, form styrkveitinga, aukið samstarf við félagasamtök í menningarmálum, aukinn sess Vífilsstaða sem merks sögustaðar í Garðabæ og hugsanlegir haustviðburðir. Nefndin samþykkti að halda Tónlistarveislu í skammdeginu í nóvember 2014. Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að hefja undirbúning viðburðarins. $line$$line$Á vegum fráfarandi menningar- og safnanefndar var komin af stað vinna við gerð samstarfssamnings við lista- og menningarfélagið Dægradvöl sem staðið hefur fyrir ýmsum menningarviðburðum á Álftanesi frá stofnun. Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að halda því verki áfram í samvinnu við Dægradvöl til framlagningar í nefndinni.$line$$line$Umræðu um haustverkefni 2014 verður haldið áfram á næsta fundi nefndarinnar í september og verða þá jafnframt til skoðunar menningarverkefni fyrir vorið 2015. Samþykkt var að samþætta næsta fund vettvangsferð nefndarinnar í Hönnunarsafnið, bókasafnið og e.t.v. fleiri staði ef tími vinnst til (Krókur, Hofsstaðir).
Málsnúmer 1408351
04
Verkefni næstu ára
Samantekt upplýsinga- og menningarfulltrúa og formanns, dags. 15.08.2014, með nokkrum hugmyndum að verkefnum nefndarinnar á næstu árum var lögð fram. Grunnur samantektarinnar er starf nefndarinnar á liðnum árum. Skjalið er hugsað sem vinnuskjal sem verður uppfært nánar jafnóðum í samstarfi við nefndarmenn. $line$$line$Fram komu ýmsar hugmyndir varðandi lista- og menningarverkefni næstu fjögurra ára í bænum. Í tengslum við fyrirhugaða stefnumótun nefndarinnar þar um í haust var samþykkt að nefndin og upplýsinga- og menningarfulltrúi fari að vinna að undirbúningi opins fundar/málþings um menningarmál í Garðabæ þar sem öllu áhugafólki um menningarmál í bænum, þ.m.t. forsvarsmönnum félagasamtaka í bænum, verði boðið að koma hugmyndum sínum og ábendingum á framfæri með það að markmiði að auka enn og bæta menningarlíf bæjarins á komandi misserum og árum.$line$
Málsnúmer 1406278
05
Styrkbeiðni vegna kvikmyndagerðarnáms
Umsókn Þórðs Kristjáns Pálssonar, dags. 9. júní 2014, um styrk vegna kvikmyndargerðarnáms.
Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við styrkbeiðninni þar sem ekki hefur tíðkast að veita sérstaka styrki til náms. $line$Nefndin er þó opin fyrir því að kanna aðra samstarfsfleti við umsækjanda í framtíðinni.
Málsnúmer 1407216
06
Minnisblað um Latabæjarheimsókn
Lagt var fram til upplýsingar minnisblað forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands, dags. 29.06.2014, um heimsókn forstöðumannsins, formanns menningar- og safnanefndar og fulltrúa frá fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar í Latabæjarstúdíóið í Garðabæ þann 25. júní sl. Minnisblaðið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 1. júlí 2014 og vísað til bæjarstjóra. $line$Formaður greindi frá heimsókninni og umræður voru um málið.$line$
Málsnúmer 1408348
07
Kynningar og önnur mál
Auglýst verður eftir umsóknum listamanna um vinnuaðstöðu í Króki á næstunni fyrir veturinn 2014-2015 og umsóknir teknar fyrir á næsta fundi nefndarinnar.